Er þetta í þínu boði, kæri þingmaður?

Jónína Brynjólfsdóttir varaformaður SSA og Ragnar Sigurðsson, formaður SSA skrifa
Jónína Brynjólfsdóttir varaformaður SSA og Ragnar Sigurðsson, formaður SSA skrifa

Þann 16. október boðaði innviðaráðherra til fundar með sólarhrings fyrirvara. Þar kynnti hann grundvallarbreytingu á Loftbrúnni. Í stað 40% afsláttar af verði flugmiða á stuðningurinn að vera föst krónutala.

Breytingunni hefur verið harðlega mótmælt um land allt, enda full ástæða til. Með fastri krónutölu bera farþegar alla hækkun miðaverðs sjálfir. Með þeirri leið er hætta á að viðmiðið fyrir ódýran miða færist upp, verðgólfið hækki og almennt verð fylgi á eftir. Svo rýrnar fasta krónutalan eftir því sem fargjöldin hækka. Það eru því fleiri sem geta tapað á þessu sprelli ráðherra en þeir sem nýta sér Loftbrúnna.

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi mótmælir boðaðri breytingu harðlega. Skerðingin er aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni. Innanlandsflug er mikilvægur hluti almenningssamgangna á Austurlandi og skiptir miklu fyrir íbúa sem þurfa að sækja þjónustu út fyrir landshlutann. Við krefjumst þess að stjórnvöld falli frá breytingunni og tryggi nægt fjármagn til að hækka afsláttarhlutfallið.

Við gagnrýnum jafnframt samráðsleysið við undirbúning breytingarinnar. Af hálfu sveitarfélaganna var aðeins Samband íslenskra sveitarfélaga boðað á kynningarfundinn, með sólarhrings fyrirvara. Fyrir fundinn höfðu ráðherra og ráðuneytið þegar rætt breytinguna við Icelandair. Flugfélagið var þannig með í samráði við ráðuneytið og ráðherra áður en tillagan var kynnt en ekki sveitarfélögin.

Eins og frægt er segir í 19. lið stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að bæta eigi samskipti ríkis og sveitarfélaga og treysta stoðir hinna dreifðu byggða. Telur Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að ríkisstjórn hennar vinni markvisst að þessum markmiðum? Það blasir við að þekking og reynsla heimamanna þarf að hafa vægi áður en ákvarðanir eru teknar um aðgengi þeirra að þjónustu.

Byggðastefna birtist í þúsundum stórra og smárra ákvarðana sem stjórnvöld taka og í því hvaða aðgerðir þau fjármagna. Nú gefst þingmönnum Norðausturkjördæmis tækifæri til að sýna hversu miklu innanlandsflug og aðgengi íbúa kjördæmisins að þjónustu skiptir þá.

Við undirrituð, fyrir hönd stjórnar SSA, köllum eftir skýru, opinberu svari frá hverjum og einum þingmanni Norðausturkjördæmis.

Nýjast