"Við eigum ekki að grufla í fortíðinni"

Dagur B. Eggertsson á Akureyrarfundinum í gær/mynd Karl Eskil
Dagur B. Eggertsson á Akureyrarfundinum í gær/mynd Karl Eskil

„Ég held að við séum stödd á ákveðnum krossgötum í þessu máli. Núna er lagt fyrir okkur próf, þar sem kannað er hvort við ráðum við viðkvæmt deilumál og sömuleiðis hvort við getum ráðið því til lykta með hagsmuni allra í huga,“ sagði Dagur B. Eggertsson forseti borgarstjórnar Reykjavíkur á fundi Samtaka atvinnurekenda á Akureyri, sem haldinn var í gær um framtíð Reykjavíkurflugvallar.

Dagur sagði borgarstjórn tilbúna til viðræðna við bæjaryfirvöld á Akureyri um málið. Við eigum ekki að grufla í fortíðinni, við eigum að setjast niður og finna lausnir,“ sagði Dagur B. Eggertsson.

 

Nánar um þetta mál í prentútgáfu Vikudags síðar í dag

Nýjast