Stærsta áskorun á íslensk stjórnvöld frá upphafi

Hjartað í Vatnsmýri hefur nú safnað rúmlega 56.500 undirskriftum á vefnum lending.is þar sem skorað er á borgarstjórn og Alþingi að tryggja óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar. Fjöldi undirskrifta er því kominn yfir það sem safnaðist í Icesave málinu en þar námu undirskriftir 56.089.

Ljóst er því að krafa um óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar er fjölmennasta krafa sem sett hefur verið fram hérlendis. Ekkert eitt mál hefur áður notið jafn víðtæks stuðnings, segir í tilkynningu frá aðstandendum söfnunarinnar.

Undirskriftasöfnunin verður haldið áfram næstu þrjár vikur.

Nýjast