Hættuleg gatnamót

Umferðarljósin við gatnamót Glerárgötu, Borgarbrautar og Tryggvabrautar á Akureyri  eru úrelt og þykja hættuleg umferðinni. Vikudegi hafa borist fjölmargar ábendingar frá ökumönnum sem hafa lent í vandræðum við gatnamótin, en m.a. gætir ósamræmis í umferðarljósunum.

Ekkert grænt ljós er fyrir þá bíla sem koma úr austurátt og taka beygju norður, sem getur valdið ruglingi hjá ökumönnum. Ljósin eru í eigu Vegagerðarinnar. Akureyrarbær hefur þrýst á Vegagerðina um útbætur án árangurs.

throstur@vikudagur.is

Í prentútgáfu Vikudags er nánar fjallað um þetta mál og m.a. rætt við lögregluna á Akureyri og bæjartæknifræðing Akureyrarbæjar.

Nýjast