Fé fyrr af fjalli vegna slæms veðurútlits

Réttað var í Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit í úrhellisrigningu í morgun, en komið var með féð að réttinni skömmu fyrir myrkur í gærkvöld.  Ríflega 1800 vetrarfóðraðar kindur eru í þeim hluta sveitarinnar, gamla Öngulsstaðahreppnum sem Þverárrétt tilheyrir en Orri Óttarsson fjallskilastjóri segir að hluti þeirra komin niður í aðrar réttir og eins sé algengt að fé fari yfir í Fnjóskadal.

„Það gekk allt saman vel, við vorum mun fyrr á ferðinni en áætlað var, einum 9 dögum, en fyrstu göngur áttu að vera um aðra helgi.  Við likt og aðrir Norðlendingar fórum fyrr af stað vegna slæmrar veðurspár og eiginlega þykir mér kraftaverki líkast að tekist hafi að manna göngur á virkum degi með tveggja daga fyrirvara,“ segir Orri

Hann segir að vel hafi smalast, en féð var ekki heimfúst enda miklir góðviðrisdaga á meðan á göngum stóð.  „En þetta hafðist allt,“ segir hann.

Nýjast