Bólusetningar við COVID-19 og inflúensu fyrir áhættuhópa í boði á Glerártorgi

Boðið verður upp á örvunarskammt af bóluefni við COVID-19 og inflúensu bólusetningu fyrir 60 ára og …
Boðið verður upp á örvunarskammt af bóluefni við COVID-19 og inflúensu bólusetningu fyrir 60 ára og eldri og áhættuhópa í lok september og byrjun október. Mynd MÞÞ

Boðið verður upp á örvunarskammt af bóluefni við COVID-19 og inflúensu bólusetningu fyrir 60 ára og eldri og áhættuhópa í lok september og byrjun október.

Bólusetningin fer fram á Glerártorgi (Kaffi Torg) í dag, þriðjudaginn 27. september kl. 13 – 17 og á morgun, miðvikudaginn 28. september einnig frá kl. 13 til 17

Sóttvarnarlæknir hefur nú heimilað að gefa á sama tíma bóluefni við COVID-19 og bóluefni við inflúensu. Þau sem koma í bólusetningu hafa því val um hvort þau fá bæði bóluefnin á sama tíma eða aðeins annað þeirra. 

Áhættuhópar sem eru í forgangi fyrir bæði inflúensu- og COVID-19 bólusetningar eru:

Allir einstaklingar 60 ára og eldri, öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum, barnshafandi konur og heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Örvunarskammtur fyrir áhættuhópa: Bólusett með nýrri útgáfu af bóluefnum frá Pfizer/Moderna.

Grunnbólusetning: Bólusett með upprunalegum bóluefnum frá Pfizer/Moderna.[GH3] [GH4]

Bólusetningar við COVID-19 og inflúensu fyrir þá sem ekki eru í áhættuhópi

Einnig verður boðið upp á bólusetningu í næstu viku, á þriðjudag og miðvikudag, 4. og 5. október frá kl. 13 til 17 báða dagana.

Tímapantanir fara fram á heilsuvera.is eða í síma 432 4600

Fyrirtæki geta sent inn lista eins og verið hefur en það má finna á vefsíðu HSN, hsn.is.

Bólusetning við COVID-19 verður landsmönnum áfram að kostnaðarlausu en innheimt verður hefðbundið komugjald fyrir bólusetningu við inflúensu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSN

 

 


Athugasemdir

Nýjast