Sterkir stórmeistarar og lítt reyndir áhugamenn mætast við skákborðin í Skjólbrekku þegar alþjóðlega skákmótið Sel Hótel Mývatn/Mývatn Öl Open fer fram dagana 19.–22. nóvember. Hermann Aðalsteinsson hjá Skákfélaginu Goðanum segir góðar viðtökur við afmælismóti félagsins í fyrra hafa orðið hvatningu til að halda áfram. Nú hafi jafnvel þurft að vísa erlendum stórmeisturum frá.
Einn keppendanna kemur frá smábæ á Írlandi. Að sögn Hermanns hefur sá litla eða enga keppnisreynslu en fylgist með enska stórmeistaranum Simon Williams á YouTube. Tækifærið til að taka þátt í sama móti og uppáhaldsskákmanninum sínum verður til þess að hann leggur leið sína til Mývatnssveitar í nóvember.
Á sama þátttakendalista eru nokkrir af sterkustu skákmönnum Íslands og erlendir stórmeistarar sem hafa lengi látið að sér kveða í skákheiminum. Þessi blanda er hluti af aðdráttarafli mótsins, sem er öllum opið óháð keppnisreynslu.
Þegar Hermann svaraði spurningum Vikublaðsins voru 37 keppendur skráðir til leiks en hann gerir sér vonir um að þeim fjölgi áður en fyrsta umferð hefst.
„Það eru ennþá 37 skráðir en við búumst við allt að 50 keppendum. Skákmenn eru stundum seinir að skrá sig til leiks. Ég veit um þó nokkra sem ætla að vera með en eru ekki búnir að skrá sig.“
Langflestir keppendurnir eru Íslendingar. Erlendis frá koma tveir frá Englandi og einn frá hverju landanna Moldóvu, Búlgaríu og Írlandi.
Hermann segir mótið verða sterkt og baráttuna á toppnum geta orðið harða. Þar fer fremstur í flokki Vignir Vatnar Stefánsson, sem að sögn Hermanns er bæði stigahæsti skákmaður Íslands og stigahæsti keppandi mótsins.
„Stórmeistararnir ensku, Stuart Conquest og Simon Williams, eru auðvitað mjög áhugaverðir gestir og vel þekktir skákmenn alþjóðlega. Svo má ekki gleyma stórmeistaranum Ivan Schitco frá Moldóvu sem er næststigahæsti maður mótsins.“
Þá verður Íslandsmeistarinn í skák 2026, Hilmir Freyr Heimisson, meðal þátttakenda, auk stórmeistaranna Braga Þorfinnssonar og Þrastar Þórhallssonar. Sumir þessara skákmanna tóku þátt í afmælismótinu í fyrra og snúa nú aftur í Mývatnssveit.
„Það er mjög erfitt að spá fyrir um úrslit því það er svo jafnt á toppnum í þessu móti.“

Mótið er framhald af tuttugu ára afmælismóti Goðans sem haldið var í fyrra. Hermann segir reynsluna af því hafa verið afar góða, bæði fyrir keppendur og aðstandendur.
„Afmælismótið í fyrra heppnaðist ótrúlega vel og ríkti mikil ánægja með það meðal keppenda og hjá okkur sem stóðu fyrir því. Það reyndist auðveldara að fá sterka innlenda skákmenn til að koma norður í Mývatnssveit heldur en við reiknuðum með og það mót varð líka sterkt.“
Einn gestanna þá var Simon Williams, sem er mörgum skákáhugamönnum kunnur fyrir myndbönd sín, bækur og skákkennslu á netinu. Koma hans vakti athygli og hjálpaði að sögn Hermanns til við að fá fleiri innlenda keppendur til leiks.
Ekki spillti fyrir hvernig Williams lýsti upplifun sinni þegar heim var komið. Að sögn Hermanns sagði hann á YouTube-rás sinni að mótið hefði verið það besta sem hann hefði tekið þátt í.
„Þau orð hans urðu frekari hvatning fyrir okkur til að halda áfram, komandi frá manni sem hefur tekið þátt í mjög mörgum skákmótum í gegnum tíðina.“
Ákveðið var að halda sama sniði á mótinu nú enda hafi keppendur og skipuleggjendur verið ánægðir með framkvæmdina.
Gott orðspor fyrra mótsins virðist hafa skilað sér. Hermann segir auðveldara hafa reynst að fá sterka erlenda skákmenn til þátttöku að þessu sinni. Áhuginn hafi raunar verið meiri en fjárhagurinn leyfði að gengið yrði til móts við.
„Núna reyndist auðveldara að fá sterka erlenda skákmenn til að mæta og við þurftum að vísa nokkrum erlendum stórmeisturum frá þar sem við höfðum ekki efni á því að fá þá á mótið.“
Það kosti talsvert að halda alþjóðlegt skákmót og þekktum keppendum þurfi að bjóða eitthvað í staðinn fyrir komuna. Þátttaka þeirra geti hins vegar haft mikið að segja fyrir aðsóknina.
„Þekkt nöfn laða að aðra skákmenn því allir vilja eiga séns á því að tefla við stórmeistara í alvöru móti.“
Hermann segir staðsetninguna í Mývatnssveit hafa hentað vel. Þó verði líklega gerðar einhverjar breytingar fyrir næsta mót með það að markmiði að laða enn fleiri að.
En hvað dregur erlenda skákmenn norður í Mývatnssveit þegar nóvember er langt genginn? Hermann telur náttúruna vega þungt ásamt tækifærinu til að tefla á sterku móti við góðar aðstæður.
„Náttúrufegurð Íslands og sérstaklega þá Mývatnssveitar, jafnt sumar sem vetur, dregur erlenda skákmenn á mótið.“
Erlendu gestirnir hafi áður teflt í Reykjavík en að Simon Williams undanskildum ekki farið út fyrir borgina. Nú gefist þeim tækifæri til að kynnast öðrum hluta landsins.
Þeir sem vilja fylgjast með taflmennskunni þurfa þó ekki að ferðast norður. Allar skákir mótsins verða sýndar í beinni útsendingu á netinu. Einnig verður þeim varpað á skjá í Skjólbrekku svo gestir geti fylgst með framvindunni án þess að ganga á milli borðanna.
Þótt stórmeistararnir veki athygli leggur Hermann áherslu á að mótið sé einnig vettvangur fyrir almenna skákáhugamenn.
„Mótið er öllum opið, bæði fyrir þá sem hafa litla eða enga keppnisreynslu og alveg upp úr.“
Hann á von á að nær allir virkir félagsmenn Goðans verði með, auk nokkurs fjölda frá Akureyri. Flestir keppendurnir komi þó af höfuðborgarsvæðinu.
Þá stefnir í þátttöku sjö kvenna. Sú stigahæsta kemur frá Búlgaríu en hinar eru íslenskar og voru að sögn Hermanns flestar í íslenska kvennalandsliðinu sem tók þátt í Ólympíuskákmótinu í september síðastliðnum.
Samstarf við fyrirtæki og sveitarfélög hefur gert mótshaldið mögulegt. Sel Hótel Mývatn og Mývatn Öl eru stærstu styrktaraðilarnir, ásamt því að fjölmörg önnur fyrirtæki leggja sitt af mörkum. Hermann segir bæði Þingeyjarsveit og Norðurþing einnig hafa komið myndarlega að verkefninu.
„Mótið hefði aldrei getað farið fram án samstarfs við fyrirtæki á svæðinu sem hafa veitt styrki vegna mótshaldsins.“
Vilji er til að gera mótið að reglulegum viðburði, þótt það verði ekki haldið árlega.
„Við stefnum á að halda mótið á tveggja til þriggja ára fresti og erum að horfa á haustið 2028 eða vorið 2029 fyrir það næsta.“
Fyrst bíða þó fjórir mótsdagar í Skjólbrekku þar sem reyndir stórmeistarar, heimamenn og áhugafólk fá tækifæri til að reyna með sér.
„Mótið er búið að vera í undirbúningi í meira en ár og við hjá Skákfélaginu Goðanum erum orðnir mjög spenntir," segir Hermann að lokum