Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, og Pálína Sigrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Grófarinnar, við undirritun samningsins, Mynd akureyri.is
Akureyrarbær og Grófin geðrækt hafa skrifað undir nýjan samstarfssamning sem tryggir áframhaldandi þjónustu Grófarinnar á Akureyri til ársloka 2028.
Samningurinn miðar að því að styrkja Grófina í hlutverki sínu sem geðræktarmiðstöð og efla samstarf sitt við þá aðila innan bæjarins sem sinna fólki með geðraskanir.
Grófin býður fullorðnum einstaklingum með geðraskanir stuðning í bataferli með áherslu á virkni, jafningjastuðning, hópastarf og stuðningsviðtöl. Starfið byggir á því að skapa svigrúm til bata á eigin forsendum og án tímamarka.
Listasafn Íslands og Safnasafnið standa sameiginlega að sýningunni Ísland úr fjarska sem verður opnuð í Safnasafninu á Svalbarðseyri laugardaginn 16. maí kl. 14.
Ný heimasíða iðnaðarsvæðisins á Bakka hefur verið opnuð á slóðinni bakki.nordurthing.is með það að markmiði að kynna uppbyggingartækifæri á svæðinu og veita skýra yfirsýn yfir innviði, þjónustu og samfélagið sem styður við starfsemi þar.
Miðvikudaginn 13. maí tók ég þátt í mínu fyrsta pallborði í þessu framboðsbrölti mínu. Ég taldi mig nokkuð örugga, enda hafði ég „lært heima“ og þekki málaflokkinn vel. Sömuleiðis hef ég átt ótal samtöl um málaflokkinn.
Síðustu vikur hafa verið skemmtilegar og lærdómsríkar, við í VG höfum heimsótt fjölmörg félagasamtök og fyrirtæki og hitt og hlustað á fólk sem glímir við ýmsar áskoranir.
Kæri kjósandi. Á morgun hefur þú kost á að kjósa samheldinn og kraftmikinn hóp Akureyringa sem hefur einsett sér að vinna að jöfnu og sterku samfélagi þar sem enginn er skilinn eftir.