05.10.2020
Neyðarstig almannavarna vegna Covid-19 tók gildi á miðnætti, á sama tíma og hertar sóttvarnaaðgerðir. Íbúar Akureyrar eru eins og aðrir landsmenn eindregið hvattir til að sýna ítrustu varkárni í öllu sínu daglega lífi.
Lesa meira
05.10.2020
Áralöng ástundun líkamsræktar hefur gefið mér ýmislegt fleira en stæltan skrokkinn. Ég hef líka lært allskonar trix. Óþægilega mikið loft getur til dæmis myndast inni í mér við átökin.
Lesa meira
04.10.2020
Innbrot sem framið var í Bílaleigu Húsavíkur aðfararnótt 15. september er enn óupplýst að sögn Hreiðars Hreiðarssonar varðstjóra lögreglunnar á Húsavíkur. Óprúttin aðili eða aðilar braut sér leið inn um glugga syðst á vesturhlið hússins. Þjófurinn hafði á brott með sér um 400 þúsund krónur í peningum.
Lesa meira
04.10.2020
Akureyringurinn Guðmundur Örn Ísfeld stofnaði alþjóðlega plötufyrirtækið RPM Records fyrir um tveimur og hálfu ári sem hann rekur í Danmörku en þar hefur Guðmundur búið undanfarin ár. Guðmundur er kvikmyndagerðarmaður og grafískur hönnuður að mennt og hefur framleitt fjölda músíkmyndbanda og hannað plötuumslög. Hann varð var við vaxandi þörf á vínylpressu og stofnaði fyrirtækið VinylTryk sem síðar stækkaði og varð að RPM Records. Vikublaðið tók Guðmund tali og fornvitnaðist um starfið hans í Danmörku sem vínylpressara. kureyringurinn Guðmundur Örn Ísfeld stofnaði alþjóðlega plötufyrirtækið RPM Records fyrir um tveimur og hálfu ári sem hann rekur í Danmörku en þar hefur Guðmundur búið undanfarin ár. Guðmundur er kvikmyndagerðarmaður og grafískur hönnuður að mennt og hefur framleitt fjölda músíkmyndbanda og hannað plötuumslög. Hann varð var við vaxandi þörf á vínylpressu og stofnaði fyrirtækið VinylTryk sem síðar stækkaði og varð að RPM Records. Vikublaðið tók Guðmund tali og fornvitnaðist um starfið hans í Danmörku sem vínylpressara.
Lesa meira
03.10.2020
Aðalfundur Leikfélags Húsavíkur fór fram á þriðjudagskvöld þar sem ný stjórn var kjörin. Nýir félagar bættust einnig í hópinn en þeim hefur fjölgað nokkuð undan farin ár og eru í dag um 110 talsins.
Nýr formaður var einnig kjörin, Guðrún Einarsdóttir tekur við af Kolbrúnu Ödu Gunnarsdóttur sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Hún var í stjórn áður síðan haustið 20017. Guðrún fær leikhúsáhugan frá foreldrum sínum sem bæði voru virkir þátttakendur í félaginu frá því á áttunda áratugnum og faðir hennar hefur marg oft setið í stjórn og tekur enn virkan þátt í starfinu. „Ég hef verið í leikfélaginu frá því ég var krakki, eiginlega frá því að ég fæddist hreinlega,“ segir hún og bætir við að nýverið hafi fundist gömul gestabók í Flókahúsi en þar hafi Guðrún skrifað nafnið sitt 6 ára gömul.
Lesa meira
03.10.2020
Páley Borgþorsdóttir tók við starfi lögreglustjóra á Norðurlandi eystra í sumar. Sjálf lýsir hún sér sem landsbyggðarmanneskju sem setur fjölskylduna í fyrsta sæti. Blaðamaður Vikublaðsins settist niður með henni á dögunum og ræddi við hana um ferilinn og manneskjuna á bak við lögreglustjórann. „Ég er búin að vinna í 18 ár í sakamálum. Fyrst sem staðgengill sýslumanns og síðan lá leiðin í lögmennsku. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á sakamálum og þessu kerfi okkar, ekki síst hvernig við getum gert það betra. Maður er í þessu til að reyna koma einhverju góðu til leiðar,“ segir Páley. Hún er mikil fjölskyldumanneskja og viðurkennir að það hafi verið erfitt að skilja foreldra sína eftir í Vestmannaeyjum enda séu þau mjög náin. Í viðtalinu ræðir hún einnig um að lögreglustjórar þurfi að taka erfiðar ákvarðanir um erfið mál. „Við þurfum ekki og erum ekki í vinsældarkeppni. Það er ekkert nýtt fyrir okkur að vera ekki góði gæinn en það snertir mig vissulega þegar málin fara að hafa áhrif á fólkið mitt.“
Lesa meira
02.10.2020
Verkalýðshreyfinguna og samtök atvinnulífsins greinir á um hvort forsendur sem liggja að baki hófstilltum lífskjarasamningunum séu brostnar. Forystusveit vinnuveitenda taldi svo vera, þar til á þriðjudaginn í þessari viku. Verkslýðshreyfingin er á annarri skoðun og telur ekki nægar forsendur fyrir hendi til þess að slíta samningunum.
Lesa meira
02.10.2020
Þegar blaðamaður Vikublaðsins leitaði svara hjá Kristjáni Þór Magnússyni, sveitarstjóra Norðurþings vegna stöðunnar sagði hann að enn væri ekki vitað hversu há sú upphæð er sem sveitarfélagið verður af vegna tekjumissis gegnum útsvarsgreiðslur starfsmanna sem vinna/unnið hafa í Norðurþingi og tengjast Bakka. „Þess ber að geta að útsvarsgreiðslur til sveitarfélagsins enn sem komið eru í takti við fjárhagsáætlun ársins 2020. Ljóst má vera að m.a. hlutabótaleið stjórnvalda sem og ögn bjartari niðurstaða sumarvertíðarinnar í ferðaþjónustu hér á svæðinu hefur hjálpað verulega til hvað þetta varðar,“ segir Kristján í skriflegu svari.
Lesa meira
02.10.2020
Sigurður Guðmundsson, fyrrum bæjarfulltrúi á Akureyri, gagnrýnir nokkuð harðlega þá ákvörðun að fella niður minni-og meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar eins og kynnt var í síðustu viku til að bregðast við rekstrarvanda sveitarfélagsins.
Lesa meira
01.10.2020
Vikublaðið kemur út í dag, fimmtudaginn 1. október og er farið um víðan völl í blaði vikunnar
Lesa meira
29.09.2020
Starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri má nú ekki fara til höfuðborgarsvæðisins, sem núna er skilgreint sem rautt svæði, nema brýna nauðsyn beri til.
Lesa meira
29.09.2020
„Það var mjög skemmtilegt verkefni að skrá þessa sögu enda er hún í senn áhugaverð og óvenjuleg,“ segir Óskar Þór Halldórsson, höfundur bókarinnar Á Ytri-Á sem kom út á dögunum. Þungamiðjan í þessari nýju bók er saga hjónanna Sigurbjörns Finns Björnssonar og Mundínu Þorláksdóttur á Ytri-Á á Kleifum við vestanverðan Ólafsfjörð og tuttugu barna þeirra sem þau eignuðust á 28 árum, frá 1917 til 1945. Sextán barnanna komust til fullorðinsára, fjögur dóu í æsku. Finnur og Mundína létust á níunda áratug síðustu aldar. Átta af sextán börnum þeirra sem komust til fullorðinsára eru á lífi.
Á Ytri-Á er yfirgripsmikil saga þar sem varpað er ljósi frá ýmsum hliðum – í gleði og sorg - á hið daglega líf stórfjölskyldunnar á Ytri-Á. Kleifarnar, Ólafsfjörður, Hvanndalir og Héðinsfjörður koma líka við sögu, óvænt flugferð Finns til Kaupmannahafnar og margt fleira. „Eins og nærri má geta er þetta yfirgripsmikil saga sem ég hef unnið að með ýmsu öðru undanfarin ár. Mér er til efs að þess séu önnur dæmi á tuttugustu öld að hjón hafi eignast tuttugu börn. Ég leitaðist við að varpa ljósi á hvernig það yfirleitt var hægt að koma upp þessum stóra hópi barna. Slíkt væri óhugsandi í dag enda hafa orðið gríðarlegar samfélagsbreytingar á öllum sviðum,“ segir Óskar
Lesa meira
28.09.2020
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis leitar nú leiða til að tryggja áframhaldandi rekstur þjónustumiðstöðvar, en erfiða fjárhagsstöðu félagsins má rekja til efnahagslegra áhrifa Covid-19. Þrátt fyrir sparnaðaraðgerðir sér stjórn félagsins ekki fram á að standa af sér áframhaldandi efnahagslega óvissu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag.
Lesa meira
28.09.2020
Hrönn Björgvinsdóttir rýnir í sviðslistaverkið Tæring sem er í sýningu á Hælinu, setri um sögu Berklanna.
Lesa meira
28.09.2020
Fjórir eru í einangrun á Norðurlandi eystra vegna kórónuveirusmits og fjölgar þeim eitt frá því í gær.
Lesa meira
28.09.2020
Áralöng hefð er fyrir því að Norðursigling bjóði nemendum á unglingastigi Borgarhólsskóla í haustsiglingu á Skjálfandaflóa. Slík ferð var farin á dögunum þegar um 100 nemendur og kennarar sameinuðust í bátana Bjössa Sör og Náttfara og sigldu um flóann, skoðuðu hnúfubaka og tóku svo land í Flatey.
Lesa meira
28.09.2020
Gunnar Rafn Jónsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Verkvals ehf. af föður sínum Jóni Björnssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá upphafi eða í rúma þrjá áratugi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Lesa meira
28.09.2020
Blóðskilunarteymi Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hlaut hvatningarverðlaun sjúkrahússins fyrir árið 2019
Lesa meira
27.09.2020
Framan af ævinni var ég ansi kjarklítil. Ég var þögul og feimin, svolítið inní mér.
Sem betur fer með aldri og auknum þroska, sjálfsrækt og æfingu fór ég að öðlast kjark. Ég fór að þora að hafa rödd og leyfa henni að heyrast.
Lesa meira
26.09.2020
Guðný Steingrímsdóttir sneri nýverið aftur til heimahaganna eftir 16 ár í burtu og virtist hin kátasta að vera komin heim þegar blaðamaður Vikublaðsins heyrði í henni á dögunum. Guðný er búin að opna útfararþjónustu sem hún mun sinna sjálf í samstarfi við kirkjuna. Hún útskrifaðist árið 2007 sem félagsráðgjafi og hefur síðan unnið sem slíkur hjá Reykjavíkurborg í hefðbundinni félagsþjónustu og síðast liðin 9 ár hefur hún verið á Landspítalanum, bæði á krabbameinsdeild og síðan á geðdeildunum. „Þar liggur mín reynsla sem ég á von á að muni nýtast vel í útfararþjónustunni,“ segir Guðný sem starfar einnig á Hvammi, heimili aldraðra samhliða útfararþjónustunni.
Lesa meira
26.09.2020
„Ég er ein þeirra sem elskar að næra annað fólk. Að setja ást og athygli í hráefni sem eru stútfull af næringu er tíma vel varið!,“ segir Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir sem er matgæðingur vikunnar. „Þar sem ég vinn við að aðstoða fólk við að bæta heilsuna hef ég margoft séð hversu mikil áhrif gott mataræði hefur á bæði líkamlega og andlega heilsu. Það hef ég ekki hvað síst fundið á eigin skinni og vanda því valið þegar kemur að mat. Góðgæti og gúmmelaði þarf t.d. ekki að vera ruslfæði, þvert á móti. Við getum auðveldlega gert vel við okkur og notið góðs af því á sama tíma! Ég hef ekki tölu á því hversu oft ég hef...
Lesa meira