
Niceair og Umhyggja í samstarf
Niceair býður langveikum börnum sem eru í Umhyggju eða aðildarfélögum Umhyggju frítt flug til allra áfangastaða sinna
Niceair býður langveikum börnum sem eru í Umhyggju eða aðildarfélögum Umhyggju frítt flug til allra áfangastaða sinna
Laugardagur og lífið gekk sinn vanagang í Ránargötu 16 enda voru þeir dagar hver öðrum líkir upp úr miðri 20. öldinni. Eftir að hafa senst suður í Alaska að kaupa mjólk og brauð bað mamma mig að fara niður á Tanga í geymsluna okkar í Íshúsinu að sækja slátur og lifrarpylsu sem þar voru í geymslu ásamt öðru góðgæti. Enginn ísskápur hvað þá frystikista á okkar heimili frekar en öðrum í þá daga. Þar með var búið að hugsa fyrir kvöldmatnum en síðan fórum við mamma gjarnan í framhaldinu saman í Reykhúsið, syðst í Norðurgötunni, á fund Finnboga vinar okkar sem seldi besta hrossakjötið. Með þessum síðustu aðgerðum var sunndagssteikin komin í hús og mér óhætt að fara út að leika mér með hinum krökkunum úr nágrenninu.
„Þetta eru vonbrigði. Þessi upphæð dugar okkur líklega fram á haustið,“ segir Þorsteinn E. Arnórsson safnstjóri á Iðnaðarsafninu á Akureyri. Safnið óskaði eftir fimm milljón króna styrk frá Akureyrarbær til að vinna viðtöl við fólk sem starfaði áður fyrr í ýmiskonar iðnaði á Akureyri. Bæjarráð samþykkti að styrkja verkefnið um þrjár milljónir króna. Ætlunin er að starfsmaður á safninu safni upplýsingum og taki viðtöl við eldri borgara í bænum sem störfuðu í iðnaði af öllu tagi og bjargi þarf með dýrmætri þekkingu frá glötun.
Sigríður María Hammer sem ásamt eiginmanni sínum Finni Aðalbjörnssyni standa að uppbyggingu Skógarbaðanna segir að böðin hafi tekið ákveðnum breytingum frá því sem upphaflega var lagt upp með
Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands gagnrýnir styrkúthlutun
Á sunnudag sl. var árlegur vinnudagur hjá Golfklúbbi Akureyrar. Þá mæta á félagar í klúbbnum á Jaðarsvöll, taka til hendinni og hjálpast að við að koma vellinum í sem best stand fyrir opnun. Vikublaðið tók Steindór Kristinn Ragnarsson, framkvæmdastjóra Golfklúbbs Akureyrar og vallarstjóra á Jaðarsvelli tali en hann er afar spenntur fyrir sumrinu.
„Það var mjög góð mæting eða rétt rúmlega 80 manns sem komu og tóku til hendinni,“ segir Steindór og bætir við að flestir hafi gert sér glaðan dag á eftir og farið í golf.
Völlurinn var svo opnaður almenningi á mánudag, 16. maí. Byrjunin hefði ekki getað verið betri og fjölmenntu golfþyrstir Akureyringar á Jaðarsvöll í brakandi sumarblíðu.
Steindór segir að völlurinn komi mjög vel undan vetri enda hafi hann verið fljótt auður af snjó og apríl hafi verið hagstæður. „Hann kemur bara mjög vel undan vetri og allir mjög ánægðir með hann,“ segir hann og bætir við að töluverð vinna sé lögð í það yfir veturinn að fyrirbyggja skemmdir.
„Fyrst og fremst fylgjumst við með flötunum og mokum af þeim snjó. Ef það er kominn klaki og útlit fyrir einhverja hlýja daga þá förum við og mokum snjónum af til að nýta hitann til að bræða klakann,“ útskýrir Steindór.
Þá segir hann að einnig hafi verið gerðir nýjir fremri teigar í vetur og drenvinna framkvæmd á brautum.
Einhvern tíma hafði golfíþróttin þá ímynd að hún væri fyrst og fremst fyrir efnaða eldri borgar í köflóttum buxum. Sú ímynd er löngu dauð og grafinn enda eykst golfáhugi Íslendinga ár frá ári; og það eru öll kyn og aldurshópar sem sýkjast af golfbakteríunni. Í dag eru um 20 þúsund iðkendur skráðir í golfklúbba um allt land og að sögn Steindórs, annar eins fjöldi sem stundar íþróttina að einhverju leiti án þess að vera með félagsaðild.
„Þetta er svo sannarlega íþrótt fyrir alla, á hvaða aldri sem er. Við getum verið með fimm ára barn að spila með afa sínum á áttræðisaldri þess vegna. Þetta hentar öllum,“ segir Steindór og bætir við að um 850 meðlimir séu skráðir í Golfklúbb Akureyrar og stefnan sé að fjölga þeim upp í 1000 á allra næstu árum. „Rétt rúmlega 200 af þeim eru í barna og unglingastarfinu. Þannig að við erum með hátt hlutfall ungmenna. Það er mikilvægast af öllu að vera með gott barna og unglinga starf fyrir framtíðina.“
Á mánudag sl. lauk framlengdum fresti Orkusjóðs til umsókna fyrir styrki til kaupa á, og uppsetningu hleðslustöðva fyrir samgöngur
„Við í Bandaríska sendiráðinu erum auðmjúk yfir fórnfúsu og hetjulegu starfi sjálfboðaliða í íslensku björgunarsveitunum.“
Búnaðurinn verður notaður í fyrsta sinn um helgina en á laugardag fer fram Lions-mót sundfélagsins Ránar frá Dalvík og heimaliðsins Óðins og hefst mótið kl. 9
Framkvæmdir við stækkun lax og bleikju landeldisstöðvar Fiskeldis Samherja í Öxarfirði eru komnar á fulla ferð . Eins og fram hefur komið er stefnt að þvi að tvöfalda eldisrými og framleiðslu þannig að stöðin skili af sér u.þ.b 3000 tonnum á ári
Tvöfalda á eldisrými og framleiðslu, þannig að hún verði um þrjú þúsund tonn á ári. Byrjað er að byggja fyrstu eldiskerinn en þau verða fimm og helmingi stærri en þau sem fyrir eru, sannarlega ekki nein smásmíði þar á ferð.
Þekkingarnet Þingeyinga hóf kennslu í tæknilæsi fyrir 60 ára og eldri í byrjun maí
Sunnudaginn 22. maí hefja Strætisvagnar Akureyrar akstur um hið nýja Hagahverfi syðst í bænum
„Það er samhljómur og við erum sammála um að halda áfram og vinna að góðum verkefnum,“ segir Hjálmar Bogi Hafliðason, oddviti B-lista
Tríóið DJÄSS er á tónleikaferðalagi um landið og nú styttist í að við fáum notið þess að hlusta á þá drengi í DJÄSS því tónleikar verða í Minjasafninu á Akureyri föstudaginn 27.maí kl.17.00 og í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík sama dag kl.20.00.
„Það er aldrei létt verk að fara í kjarasamninga og ástandið hefur um tíðina oft verið erfitt, en ætli menn séu ekki nokkuð sammála um að það er af ýmsum ástæðum þungt fyrir fæti nú. Við höfum oft séð það svart þegar farið er af stað í samningagerð og vonum bara að okkur farnist vel í komandi viðræðum,“ segir Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju. Björn fagnaði nú í byrjun mánaðar 40 ára starfsafmæli sínu hjá félaginu. Hann var um 12 ára skeið formaður Starfsgreinasamband Ísland og lét af því embætti á nýliðnu þingi sambandsins. Hann lætur af störfum sem formaður á aðalfundi félagsins í apríl á næsta ári, en hann verður 70 ára gamall árið 2023.
Björn er fæddur á Nolli í Grýtubakkahreppi og ólst upp við öll almenn landbúnaðarstörf. Hann flutti til Akureyrar árið 1973 og sinnti ýmsum störfum í bænum, var m.a. svína og nautahirðir en lengst af starfaði hann í byggingavinnu. Með honum starfaði maður sem var í stjórn Verkalýðsfélagsins Einingar og fékk hann Björn eitt sinn með sér á fund í Einingu. „Ég hafði í sjálfu sér ekki neinn sérstakan áhuga á verkalýðsmálum á þeim tíma en hafði tekið þátt í félagsmálum ýmiskonar og lét til leiðast og fór með honum á fundinn. Þar hafði ég auðvitað skoðanir og var ekki að liggja neitt á þeim. Það leið ekki nema um það bil vika þar til ég fékk fyrirspurn um hvort ég vildi taka sæti í trúnaðarráði félagsins og ég samþykkti það. Þar með var ég komin af stað, boltinn farinn að rúlla. Þegar kosningar urðu í félaginu á milli Jóns Helgasonar og Guðmundar Sæmundsson var farið fram á það við mig að ég færi á lista Jóns sem stjórnarmaður. Við unnum kosninguna og stuttu síðar ræddu Jón og Sævar sem var varaformaður við mig hvort ég væri til í að koma og starfa á skrifstofu félagsins. Ég þáði það og hóf störf þann 1. maí 1982. Í fyrstu fólst það í að sinna vinnustöðum og trúnaðarmannakerfinu,“ segir Björn sem var 29 ára þegar hann hóf störf á skrifstofu Einingar. Hann tók við stöðu varaformanns árið 1986 og varð formaður félagsins árið 1992.
Eining-Iðja er stærsta stéttarfélagið á landsbyggðinni með um 8.000 félagsmenn og hefur sína vigt innan Starfsgreinasambandsins, á til að mynda alltaf fulltrúa í framkvæmdastjórn SGS og í miðstjórn ASÍ. Geta má þess að Eining-Iðja samanstendur af alls 24 stéttarfélögum sem áður fyrr voru starfandi við Eyjafjörð en hafa nú sameinast í eitt. Félagið rekur skrifstofur á Dalvík og Fjallabyggð og er með fulltrúa á Grenivík og Hrísey og fara starfsmenn á skrifstofunni á Akureyri reglulega í heimsóknir á þéttbýlisstaðina við Eyjafjörð til skrafs og ráðagerða.
Mikilvægt er að sátt ríki um framkvæmd skipunar skólameistara Menntaskólans á Akureyri
Vilja vinnuhóp um brunavarnir og flóttaleiðir
Á fundinum var rætt um áherslur allra og kom í ljós að mikill samhljómur væri meðal fundarmanna í öllum helstu málum
Það er mat valnefndar að Minjasafnið á Akureyri haldi vel „lifandi“ tengslum milli svæðisbundins menningararfs og samtímans
Um síðustu helgi fór fram þriðja og síðasta listvinnustofa verkefnisins Allt til enda - listvinnustofur barna
Miklar umræður hafa verið í bænum um skort á upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn og mikinn fjölda fyrirspurna þeirra í Menningarhúsinu Hofi
Mikil hvatning og viðurkenning á mikilvægi skólans
Miðaldaminjar fundnar í Grímsey
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur slitu í kvöld viðræðum við L-listann um myndun meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar
Bjarni Fritzson, Brynhildur Þórarinsdóttir og Gunnar Helgason lesa úr eigin verkum