Akureyrarbær hefur kynnt nýja tillögu að breytingu á deiliskipulagi við Hofsbót 1-3. Tillagan er liður í áframhaldandi þróun miðbæjarins og markar mikilvægt skref í þeirri framtíðarsýn að efla mannlíf, þjónustu og aðdráttarafl miðbæjarins. Frá þessu segir á vef Akureyrarbæjar.
Festi hefur gerst bakhjarl Driftar EA og bæst í hóp öflugra fyrirtækja sem styðja við uppbyggingu nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Norðurlandi. Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi og Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA, undirrituðu samstarfssamning þess efnis á dögunum.
Stebbi JAK gefur nú út sína aðra sólóplötu og blæs til glæsilegra útgáfutónleika í Samkomuhúsinu á Húsavík n.k. fimmtudagskvöld 20. ágúst og á Græna hattinum föstudagskvöldið 21 ágúst. Tónleikarnir hefjast í báðum tilfellum klukkan 21:00.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri heimsótti í morgun starfsfólk nýja leikskólans Hagasteins við Naustagötu. Þar eru nú allir í óða önn að undirbúa opnun skólans í næstu viku.
Nú stendur yfir glæsileg sýning í Hofi þar sem sextíu og einn félagi í Myndlistarfélaginu á Akureyri sýnir verk sín. Sýningin gefur innsýn í persónulegan og margslunginn myndheim þar sem tekist er á við flókinn veruleika með fjölbreyttum tjáningarformum myndlistarinnar.
Kjörstaðir í Akureyrarbæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 29. ágúst nk. eru í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hríseyjarskóla og í Félagsheimilinu Múla í Grímsey.
Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SFF.
Sumri er tekið að halla og lífið gengur senn sinn vanagang. Gott er að taka upp gömlu rútínuna og feta veginn áfram. Umferðin þyngist jafnt og þétt nú þegar fólk snýr aftur til vinnu og skólar hefja störf. Umfang daglegs lífs verður ögn flóknara.