Fjármálavit gefur grunnskólum nýtt borðspil um fjármálalæsi

Frá vinstri:  Kristín Lúðvíksdóttir verkefnastjóri Fjármálavits, höfundarnir Sonja Oliversdóttir, Þó…
Frá vinstri: Kristín Lúðvíksdóttir verkefnastjóri Fjármálavits, höfundarnir Sonja Oliversdóttir, Þórunn Jenný Guðmundsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Salka Sigmarsdóttir og Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri SFF Mynd sff.is

Fjármálavit gefur grunnskólum landsins eintak af nýja borðspilinu Aur og áhættu.

Spilið er afrakstur nýsköpunaráfanga nemenda í Verzlunarskóla Íslands og er hugsað sem skemmtilegt uppbrot í skólastarfi en einnig að það nái til sem flestra og þjóni þannig sínum tilgangi að efla almennt fjármálalæsi.

Í spilinu geta leikmenn fjárfest og tekið áhættu, en notast er við svokölluð markaðs- og óvissuspil sem hafa áhrif á það hvernig leikurinn spilast, enda getur allt gerst á ófyrirsjáanlegum markaði. Spilinu er ætlað að hjálpa leikmönnum að fá innsýn í hlutabréfamarkaðinn, skilja á skemmtilegan hátt hvernig viðskipti fara fram og auka þekkingu leikmanna á grundvallarhugtökum í fjármálum.

Höfundar spilsins eru Kolbrún Jónsdóttir, Salka Sigmarsdóttir, Sonja Oliversdóttir og Þórunn Jenný Guðmundsdóttir. Fjármálavit veitti höfundum styrk til útgáfu spilsins.

Fulltrúar grunnskóla geta pantað eitt ókeypis eintak á hvern skóla hér. Aðrir áhugasamir geta keypt spilið beint af höfundum með því að leggja inn pöntun á netfangið aurogahaetta@gmail.com.

Nýjast