Þórsstúlkur heiðraðar
Aðalstjórn Þórs notaði tækifærið sem gafst í kvöld í hálfleik í viðreign karlaliðs Þórs við Skallagrím í 1 deild Íslandsmótsins í körfubolta og heiðraði silfurhafa helgarinnar kvennalið félagsins og þjálfarateymi.
Sannarlega vel til fundið og óhætt að segja að liðið hefur gert heilmikið í því að koma Þór á kortið.
Þórir Tryggvason var auðvitað í Höllinni og gaukaði þessari mynd að vefnum.
Nýjast
-
Að eldast vel
- 25.10
Rúmlega miðaldra kona hefur nú lagt skóna á hilluna. Kannski ekki alveg í ,, Rúmlega miðaldra kona hefur nú lagt skóna á hilluna. Kannski ekki alveg í “venjulegri” merkingu þess orðs þar sem hún hefur aldrei átt alvöru íþróttaskó, heldur hefur hún látið af launuðum störfum. -
Endurbótum á geðdeild SAk lokið
- 25.10
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri og marka þær stórt skerf í átt að bættri þjónustu og umönnun skjólstæðinga sjúkrahússins. Opið hús var á endurbættri geðdeild þar sem samstarfsfólki og gestum gafst færi á að skoða nýja aðstöðu deildarinnar. Hafist var handa við breytingar í byrjun ágúst og er framkvæmdum nú lokið, 10 vikum síðar. -
Póstbox í Hrafnagilshverfi
- 25.10
Póstbox verður sett upp nú í október í Hrafnagilshverfi. Það verður á Skólatröð 11, við ráðhús Eyjafjarðarsveitar. Póstboxið má bæði nota til að senda pakka og sækja. Bréfapóstur verður einnig borinn út í póstboxið. Innan skamms fá öll heimili og fyrirtæki á staðnum skráningarbréf í pósti sem fylla þarf út og skila í kassa sem settur verður upp við póstboxið segir í frétt á vefsíðu Eyjafjarðarsveitar. -
Tíminn líður, trúðu mér 3
- 25.10
Þegar rætt er um aðstöðu fyrir íþróttir kemur margt upp í hugann, allt eftir því við hvern er talað. Eitt er samt vitað og það er að bætt aðstaða skilar sér alltaf. Skilar sér í fjölda iðkenda, betri starfsaðstöðu, bættum árangri, betri aðbúnaði. Skýrt dæmi um þetta er t.d að finna hjá Skautafélaginu. En það kostar líka. Við kjósum okkur fulltrúa til að stýra bænum okkar og fara með sameiginlegan fjárhag okkar. Að sjálfsögðu vilja allir gera sitt besta og því hefur verið farin sú leið 3 sinnum svo ég muni eftir að gerður hefur verið framkvæmdalisti nýframkvæmda á íþróttasviðinu. -
Ákvörðun um rafvæðingarhluta Torfunefsbryggju vegna komu minni skemmtiferðaskipa frestað
- 24.10
Á fundur Hafnasamlags Norðurlands í gær miðvikudag var m.a.Framkvæmdaáætlun fyrir árið 2025 tekin til síðari umræðu. -
Endurfundir við Kristján frá Djúpalæk á Græna hattinum
- 24.10
Endurfundir við Kristján frá Djúpalæk er yfirskrift dagskrár sem flutt verður á Græna hattinum laugardagskvöldið, 26. október kl. 15. Hljómsveitin Djúpilækur fyrir dagskránni.„Við höfum flutt þessa dagskrá í Hveragerði og áttum þar einstaklega skemmtilega og ljúfa stund með fólki sem ólst upp við texta Kristjáns og margir kynntust honum líka, en hann bjó í um 10 ár í Hveragerði. Við fundum fyrir sterkri hvatningu að norðan, þangað sem Kristján flutti úr Hveragerði, til að endurtaka leikinn á Akureyri og við hlökkum mikið til að flytja þessa dagskrá á Græna hattinum. Ég finn vel að tilhlökkunin er gagnkvæm,“ segir Halldór Gunnarsson einn Djúpalæksfélaga. -
Skiptinemar með fatamarkað
- 24.10
Skiptinemar við Háskólann á Akureyri standa nú fyrir fatamarkaði, en um er að ræða samstarfsverkefni milli skiptinemanna, Rauða krossins í Eyjafirði og umhverfisnefndar Háskólans á Akureyri. -
„Við verðum að taka alvöru umræðu um hvalveiðar “
- 24.10
Hafrannsóknarstofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2024 til 2025, ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á stofninum í haust. Stofnunin mun endurskoða ráðgjöfina þegar niðurstöður mælinga á stærð veiðistofnsins liggja fyrir í janúar. Miklir fjárhagslegir hagsmunir eru í húfi, Landsbankinn bendir á að hófleg eða meðalstór loðnuvertíð geti aukið hagvöxt á næsta ári um hálft til eitt prósentustig. -
Rauði krossinn við Eyjafjörð styrkir færanlega heilsugæslu í Hargeisa í Sómalíu
- 24.10
Stjórn Rauða krossins við Eyjafjörð hefur ákveðið að veita 4 milljóna króna fjárframlag til verkefnisins Færanleg heilsugæsla í Hargeisa í Sómalíu sem Rauði krossinn á Íslandi hefur lengi stutt við.