Skíðasvæði í seilingarfjarlægð

Rjómablíða á Reykjaheiði. Myndin er fengin af vef Norðurþings
Rjómablíða á Reykjaheiði. Myndin er fengin af vef Norðurþings

Veturinn hér norðanlands hefur verið snjóléttur með eindæmum og þarf sennilega að fara langt aftur í sögubækur til að finna annað eins. Varla er snjókorn í Skálamel þegar þessi orð voru skrifuð enn fyrir um ári síðan voru tugir fólks á öllum aldri að renna sér í brekkunni.

Skíðagöngumenn á Húsavík og í nágrenni halda þó sínu striki og eru aðstæður fyrir þá frábærar þessa dagana. Á Reykjaheiði sem er um 5 mínútna akstursfjarlægð frá Húsavík eru kjöraðstæður fyrir skíðagöngufólk. Síðastliðinn laugardag var einmuna veðurblíða og fjöldi fólks að iðka þessa skemmtilegu íþrótt sem mikill vöxtur er í þessa dagana.

Gönguspor eru troðin reglulega af Norðurþingi og eru þau auglýst inná facebook síðu Völsungs. 
Oftast eru troðnir tveir hringir, einn 3km hringur og annar 5 km langur.

Fréttin birtist fyrst á vef Norðurþings.


Athugasemdir

Nýjast