Þór lagði Snæfell í kvöld í lokaumferð Dominosdeildar karla í körfubolta. Þórsarar þurftu sigur til að vera öruggir um sæti í úrslitakeppninni og náðu því með öruggum sigri, 89:62.
Þór endar þar með í 8. sæti í deildinni og mætir deildarmeisturum KR í úrslitum.