Á morgun, laugardag fer fram vormót Júdósambands Íslands (JSÍ) eldri á Akureyri í íþróttahúsi Naustaskóla. Búist er við góðum hópi keppenda á mótinu og ætti því enginn áhugamaður um júdó að láta mótið fram hjá sér fara.
„Við erum loksins aftur að halda júdómót hér á Akureyri eftir 5 ára hlé“, segir Edda Ósk Tómasdóttir meðstjórnandi í íþróttafélaginu Draupni á Akureyri. „Á mótið munu mæta bæði landsliðsmenn og konur svo þetta verður gífurlega öflugt mót. Von er á um 40 keppendum,“ segir hún og vonast tilað sem flestir sjái sér fært um að mæta og fylgjast með mótinu en aðgangur er ókeypis.
Keppni hefst kl. 11:30 og er áætlað að henni ljúki um kl. 15:00. Skipting hópa verður með eftirfarandi hætti: