Heimir Örn og Hreinn til liðs við KA

Hreinn Þór Hauksson og Heimir Örn Árnason við undirskriftina.
Hreinn Þór Hauksson og Heimir Örn Árnason við undirskriftina.

Heimir Örn Árnason og Hreinn Þór Hauksson hafi báðir komist að samkomulagi við KA um að spila með liðinu í vetur í Grill 66-deild karla í handbolta. Frá þessu er greint á vef KA, en þetta eru stórtíðindi enda báðir gríðarlega reynslumiklir leikmenn sem munu koma til með að styrkja liðið töluvert.

Báðir hafa þeir leikið með KA á árum áður, sem og Hömrunum og Akureyri undanfarin ár.

"Heimir Örn getur leikið sem skytta og leikstjórnandi en Hreinn spilar meira í horni og á línu en þessir kappar eru einnig þekktir fyrir það að vera gríðarlega sterkir varnarmenn og hafa löngum stundum bundið varnir þeirra liða sem þeir spila með saman. KA fagnar því að þessir tveir leikmenn hafi ákveðið að aðstoða uppeldisfélag sitt á komandi leiktíð með því að spila með liðinu," segir á vef KA.

Fyrsti leikur KA er gegn ÍBV á morgun, föstudag í KA-heimilinu. Leikurinn hefst 20:15.


Athugasemdir

Nýjast