Nú er ný lokið bikarúrslitaleik kvenna I körfubolta þer sem Þórstelpur mætttu liði Kelfavikur. Það var lið Keflavikur sem sigraði 89 – 67, staðan í hálfleik var 46 – 34 fyrir Keflavik og 16 bikarmeistaratitill félagsins staðreynd.
Kvennalið Þórs var hinsvegar endurvakið árið 2021 svo  mikill munur  er á hefð og reynslu og  þvi að spila úrslitaleiki í þjóðarhöllinni í  Laugardal.  
Lið Keflavikur er  gríðarlega öflugt, einhver hafi á orði að í liðinu væru fimm landsliðskonur og  þvi var ljóst að  Þórsstelpur þyrftu að eiga  nánast fullkomin leik í til þess að ná að velgja liði Keflvíkinga undir uggum.
Því miður gekk það ekki eftir í dag og þrátt fyrir ágætis byrjun það sem Þór leiddi 13 -10 voru Keflavíkurstúlkur of sterkar. Reynslan vegur þungt í úrslitaleikjum og þó svo að Þórsliðið gæfist aldrei upp, og þær eiga skilið endalaust hrós fyrir það, ásamt því sem ,,Rauðahafið” studdi frábærlega við bakið á liðinu þá var verkefnið í dag of snúið.
Það er ótrúlega svekkjandi að tapa úrslitaleik, það vita allir sem hafa upplifað það en og það er mikilvægt að hafa í huga að gera allt sem hægt er til þess að komast sem fyrst í þá stöðu að leika til úrslita á ný.
Sá sem þetta pikkar inn hefur fulla trú á þvi að Þórsliðið komi aftur að ári, þá þessari dýrmætu reynslu ríkari.
Það koma dagar!