Laugardaginn 17. október kl. 14 opnar Ragnar Hólm Ragnarsson sýningu á nýjum olíumálverkum í Mjólkurbúðinni á Akureyri. Sýningin verður opin næstu tvær helgar frá kl. 14-17.
Ragnar hefur verið mikilvirkur í vatnslitum á umliðnum árum og stóð meðal annars fyrir afar vel heppnaðri Vatnslitahátíð Íslands um miðjan september hér í bæ. Málverkin sem hann sýnir að þessu sinni eru öll frá þessu ári en Ragnar segir að það sé gjörólíkt að fást við vatnsliti og olíumálverk.
„Já, það er gjörólíkt. Mér finnst best að klára vatnslitamyndir að mestu í einni atrennu en ég gef mér miklu meiri tíma í olíumálverkin. Líklega fara fleiri klukkustundir í að velta þeim fyrir sér, horfa og hugsa, en að ota að þeim penslinum. Maður er lengi að finna rétta taktinn, réttu litina og formin, áður en málverkin koma loks inn til lendingar og setjast, eins og ég orða það gjarnan,“ segir Ragnar um sköpunarferlið.
Sýningin Utan vega er opin laugardaga og sunnudaga frá kl. 14-17 og síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 25. október nk.