Stækkun fyrirhuguð hjá Höfða Lodge við Skælu

Með breytingunni verður heimilt heildarbyggingarmagn á svæðinu aukið úr 7.000 fermetrum í 8.100 ferm…
Með breytingunni verður heimilt heildarbyggingarmagn á svæðinu aukið úr 7.000 fermetrum í 8.100 fermetra til að skapa svigrúm fyrir fyrirhugaða stækkun Höfða Lodge.

Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Grýtubakkahrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis við Skælu. Með breytingunni verður heimilt heildarbyggingarmagn á svæðinu aukið úr 7.000 fermetrum í 8.100 fermetra til að skapa svigrúm fyrir fyrirhugaða stækkun Höfða Lodge.

Að mati sveitarstjórnar er um óverulega breytingu að ræða samkvæmt skipulagslögum, þar sem landnotkun svæðisins helst óbreytt og áfram verður um ferðaþjónustu og gistirekstur að ræða. Hvorki hámarksfjöldi gistirúma né heimiluð hæð bygginga breytist.

Sveitarstjórn telur að breytingin hafi ekki áhrif á aðra hagsmunaaðila en landeiganda og framkvæmdaraðila, enda séu engir nágrannar eða aðrir hagsmunir á svæðinu sem verði fyrir áhrifum. Skipulagsfulltrúa hefur verið falið að senda tillöguna til staðfestingar hjá HMS og auglýsa niðurstöðuna.

Jafnframt var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi hótel lóðarinnar á Skælu samhliða breytingu á aðalskipulaginu.

Nýjast