Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hefur samþykkt framkvæmda- og úrbótaáætlun Skútabergs ehf. vegna tiltektar og úrbóta á athafnasvæði fyrirtækisins á Moldhaugnahálsi.
Áætlunin var lögð fram í kjölfar kröfu nefndarinnar um að fyrirtækið skilaði skriflegri og tímasettri áætlun um hreinsun svæðisins, flutning gáma, vinnubúðaeininga og annarra lausamuna inn á geymslusvæði.
Samkvæmt áætluninni verður hreinsun svæðisins unnin í þremur áföngum. Fyrsta áfanga er lokið, öðrum á að ljúka fyrir 1. desember og þriðja og síðasta svæðinu fyrir 1. janúar 2027.
Fyrirtækið hefur jafnframt upplýst að framkvæmdaleyfi vegna sjónmanar liggi fyrir.
Heilbrigðisnefnd leggur ríka áherslu á að úrbótunum verði fylgt eftir af festu og að verklok verði innan þeirra tímamarka sem sett hafa verið. Starfsmönnum hefur verið falið að fylgjast með framvindu verkefnisins og gera reglulega grein fyrir stöðu mála til nefndarinnar.