Ný aðkoma að Hömrum eykur öryggi

Séð yfir hluta svæðisins að Hömrum   Mynd Kristófer Knutsen
Séð yfir hluta svæðisins að Hömrum Mynd Kristófer Knutsen

Unnið er að nýrri aðkomu að Hömrum þar sem gert er ráð fyrir einstefnukerfi um svæðið, með innakstri til suðurs og útakstri til norðausturs.

Unnið er að nýrri aðkomu að Hömrum þar sem gert er ráð fyrir einstefnukerfi um svæðið, með innakstri til suðurs og útakstri til norðausturs.

Breytingin er hluti af heildaruppbyggingu á svæðinu og miðar að því að bæta umferðarflæði og auka öryggi, þar sem núverandi aðkoma hefur ekki ráðið við mikla umferð á annatímum.

Framkvæmdirnar eru jafnframt lokahnykkur í uppbyggingu aðkomu að Hömrum og munu bæta aðgengi bæði gesta og viðbragðsaðila.

Kostnaður er áætlaður um 30 milljónir króna.

 

Nýjast