Marísól og leitin að gleðinni

Sólveig María Svana Haraldsdóttir leikur Marísól í samnefndu leikverki
Freyvangsleikhússins,       …
Sólveig María Svana Haraldsdóttir leikur Marísól í samnefndu leikverki Freyvangsleikhússins, Myndir aðsendar

Nóvemberhiminninn var eins og nýmáluð leiktjöld í barnasýningu þegar ég ók upp að Freyvangi síðastliðinn laugardag að sjá Marísól og leitina að gleðinni. 

.Á bílastæðinu mættu mér ungir og spenntir leikhúsgestir, sumir með bangsa í höndum sér til halds og trausts, litlar stúlkur með tíkó í hárinu og uppáfærðir drengir hátíðlegir á svip. Tilhlökkun og gleði barnanna var mér miðaldra konunni í raun nógu mikil upplifun þótt ekkert annað hefði verið á dagskrá þennan dag. Í anddyri leikhússins var búið að skapa skemmtilega umgjörð utan um myndatökur af yngstu gestunum, fullt af litríkum böngsum og jólaskrauti.

Við megum nefnilega ekki gleyma því að það getur reynst heilmikil áskorun að fara á sína fyrstu leikssýningu í lífinu, sitja í myrkvuðum sal með fætur sem ná ekki niður á gólf og mega sig svo hvergi hræra. Þess vegna er svo mikilvægt að vel sé tekið á móti ungri sál þegar hún stígur inn í sögu sem allt í einu lifnar við og ekki í boði að kveikja og slökkva á eftir þörfum.

Hildur Eir Bolladóttir  brá sér í leikhús

Freyvangsleikhúsið hefur undanfarin ár lagt sig fram um að bjóða upp á jólasýningar fyrir yngstu áhorfendurna sem er að mínu mati algjörlega til fyrirmyndar. Það er svo óendanlega mikilvægt að við segjum börnum sögur. Það er svo mikilvægt að jólaskemmtanir fyrir börn fari ekki bara fram í verslunarmiðstöðum eða jólaþorpum þótt það sé gott og blessað út af fyrir sig.

Börn verða að fá að vita hvers vegna við höldum í jól því það er ekki meðfædd vitneskja. Við verðum að segja þeim frá inntaki jólanna vegna þess það er boðskapur um að vera ljósberi í aðstæðum þar sem myrkur ríkir. Vera huggari í sorg, stuðningur í veikindum, félagsskapur í einsemd, glaður gjafari, þakklátur þiggjandi, alvöru manneskja.

Litla sagan um Marísól og leitina að gleðinni fangar þennan kjarna, þar er verið að segja sögu af lítilli stúlku sem hlakkar ekki til jólanna því pabbi hennar verður á sjó og amma hennar á ekki heimangengt. Í leikritinum hittir hún fyrir persónur sem reyna að hjálpa henni að finna tilhlökkun og gleði þrátt fyrir söknuð og þrá eftir því sem ekki getur orðið.

Höfundur leikrits og lagatexta er Jóhanna S Ingólfsdóttir sem jafnframt leikstýrir en höfundur tónlistar er Eiríkur heitinn Bóasson. Tónlistin í Marísól og leitin að gleðinni er hans hinsta verk fyrir Freyvangsleikhúsið sem hann helgaði krafta sína í marga áratugi. Í leikskrá er Eika Bó minnst af Emilíu Baldursdóttur og Hannesi Erni Blandon, þar segir meðal annars “Eiríkur Bóasson hefur auðgað samfélagið hér um langa hríð. Við söknum hans en minnumst um leið allra ánægjustunda og njótum verka hans áfram.”

Með hlutverk í sýningunni fara Sólveig María Svana Haraldsdóttir sem leikur sjálfa Marísól af miklu öryggi og einlægni, hún er jafnvíg á leik og söng þessa unga hæfileikaríka stúlka. Hallur Örn Guðjónsson fer með hlutverk bangsans Viktors og gerir það af kómík og hlýju. Jóhanna Jeanne Caudron leikur bæði móður Marísólar og Ágústu útivistarkonu og er kraftmikil og skemmtileg á sviði. Helgi Fannar Steinþórsson, Karín Ósk Steingrímsdóttir, Hannibal Máni Guðmundsson og Jón Friðrik Benónýsson eru í minni hlutverkum sem eru þó alltaf vandasöm því þá skiptir máli að stela ekki senunni en gera sitt vel og það tekst þeim öllum alveg hreint prýðilega.

Á sviðinu er hljómsveit skipuð þeim Sigríði Huldu Arnardóttur, Gunnari Möller, Hermanni Arasyni og Brynjólfi Brynjólfssyni. Það er svo miklu meira grand að hafa lifandi músík í leikhúsi enda spilar tónlist mjög stóran þátt í þessari sýningu og það er reisn yfir hljóðfæraleikurunum.

Ég er bara svo þakklát fyrir að börnum sé sinnt í sagnaheimi. Kirkjan leggur upp með það í sínu starfi og leikhúsið stendur þar líka sína plikt og fyrir það ber að þakka. Ég segi, takk fyrir mig og áfram barnaleikhús!

Nýjast