Listasafnið á Akureyri býður gestum á sérstakt ilmferðalag með Fischersund og opnun sýningarinnar Bráðnun í Ketilhúsi í kvöld, fimmtudagskvöldið 26. nóvember. Húsið opnar klukkan 19:30 en dagskráin hefst klukkan 20:00.
Kvöldið byrjar á ilmferðalagi á vegum Fischersund þar sem lykt, sögur og skynjun fléttast saman í fjölbreytta upplifun. Að því loknu verður sýningin Bráðnun formlega opnuð.
Sýningin fjallar um íslenska jökla og framtíð þeirra með spurningunni: „Hvað verður eftir af íslenskum jöklum eftir 100 ár?“ Á sýningunni eru ljósmyndir, rannsóknir, gögn, hljóð, lykt og innsetningar sem varpa ljósi á sögu jöklanna frá fortíð til framtíðar.
Í tengslum við sýninguna verða fjórar sýningar á heimildamyndinni Tíminn og vatnið (Time and Water). Fyrir hverja sýningu flytja fulltrúar Jöklarannsóknafélags Íslands erindi um íslenska jökla, rannsóknir á þeim og mikilvægi sjálfboðaliðastarfs við vöktun þeirra. Erindin hefjast klukkan 14:30 og kvikmyndasýningarnar klukkan 15:00.
Dagskráin stendur yfir á meðan sýningin er opin, með viðburðum 27. nóvember, 5. desember og 12. desember 2026 auk lokaviðburðar 9. janúar 2027.
Sýningin og tengdir viðburðir eru haldin með stuðningi 66°Norður.