Leikfélag Akureyrar frumsýnir Benedikt búálf

Leikarar og leikstjóri Benedikts búálfs.
Leikarar og leikstjóri Benedikts búálfs.

Fjölskyldusöngleikurinn Benedikt búálfur eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson og tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson verður frumsýndur í Samkomuhúsinu laugardaginn 6. mars. Það er Leikfélag Akureyrar og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sem standa að uppsetningunni.

Með hlutverk Benedikts búálfs fer Árni Beinteinn Árnason, Dídí mannabarn er leikin af Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur en Daða dreka leikur Birna Pétursdóttir. Valgerður Guðnadóttir leikur drottninguna, Björgvin Franz leikur konunginn, Kristinn Óli Haraldsson (Króli) leikur Tóta tannálf og Hjalti Rúnar Jónsson leikur Sölvar súra og Jósafat mannahrellir. Leikstjóri er Vala Fannell.

Lee Proud sér um danshreyfingar, leikgerð og dramatúrg er í höndum Karls Ágústs Úlfssonar, söngtextar eru eftir Andreu Gylfadóttur og Karl Ágúst, um leikmynd og búninga sér Auður Ösp Guðmundsdóttir, hljóðmynd Árni Sigurðsson og ljósahönnun Friðþjófur Þorsteinsson.

Söngleikurinn, sem var frumsýndur árið 2002, er einn allra þekktasti barnasöngleikur þjóðarinnar og hefur töfrandi saga og grípandi tónlist Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar unnið hug og hjörtu íslenskra barna á öllum aldri. Benedikt búálfur er byggður á samnefndum bókum eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson og fjallar um vinina Benedikt búálf og Dídí mannabarn og ferðalag þeirra um Álfheima. Tóta tannálfi hefur verið rænt og allur Álfheimur er í hættu. Vinirnir leggja af stað og á leiðinni lenda þau í ýmsum ævintýrum og ásamt dreka, blómálfum og alls konar furðuverum hjálpast þau að við að bjarga Álfheimum.

 


Athugasemdir

Nýjast