Kokkurinn þarf að vera léttur í lund

Magnús hefur starfað hjá Samherja frá árinu 1992 og verið kokkur á skipum félagsins í um 25 ár.    M…
Magnús hefur starfað hjá Samherja frá árinu 1992 og verið kokkur á skipum félagsins í um 25 ár. Mynd Samherji

„Þetta er rútína sem venst ótrúlega vel og maður hefur yfirleitt nóg að gera. Þú vaknar sex á morgnana og þá byrjar vinnudagurinn. Fyrst er að gefa morgunmat, í kjölfarið að undirbúa hádegismat og svo gengur þetta koll af kolli þangað til þú ert búinn um klukkan níu á kvöldin,“ segir Magnús Sævarsson kokkur á Björgu EA-7.

Magnús hefur starfað hjá Samherja frá árinu 1992 og verið kokkur á skipum félagsins í um 25 ár. Í morgun kom Björg EA til heimahafnar á Akureyri og lauk þar með síðasta túrnum á farsælum sjómannsferli Magnúsar. „Mér hefur líkað starfið vel. Þetta er að mörgu leyti fjölbreytt og félagar mínir um borð hafa undantekningarlaust verið góðir. Ef þú ætlar að vera kokkur á sjó þá held ég að það sé lykilatriði að vera léttur í lund og jákvæður. Og ef þú kemur vel fram við alla í kringum þig þá gengur allt miklu betur,“ segir Magnús.
 
Hann hefur verið kokkur á Björgu EA frá því skipið kom nýtt til landsins 2017
„Þetta er mjög gott skip og allur aðbúnaður til fyrirmyndar. Aðstaða í eldhúsinu er fyrsta flokks og auðveldar manni störfin. Maður man eftir því þegar maður var að byrja í þessu að það var engin uppþvottavél um borð og þá þurfti að vera með uppþvottaburstann á lofti öllum stundum. Þá var líka stórmál að hringja heim og þurfti að panta símtal í símstöð með misgóðum árangri. Aðstaðan í dag er allt önnur og miklu betri.“
 
Annað sem hefur breyst, að sögn Magnúsar, er aukinn áhugi á að borða fisk. „Þegar ég byrjaði að elda á sjó og var með fisk á boðstólnum þá þurfti helst að gefa nammi með til að jafna það út. Menn vildu helst bara kjöt en það hefur gjörbreyst. Fiskur er með því vinsælasta í dag, enda færðu ekki betra hráefni en ferskan fisk og hér um borð er nóg í boði.“
Nú tekur við nýr kafli. „Auðvitað finnst manni skrítið að vera að hætta en þetta er eitthvað sem enginn getur flúið. Maður er bara hress og kátur með að hafa góða heilsu og takast á við ný verkefni.
 
Ég hef nóg að gera og hlakka til þess sem framtíðin hefur í för með sér,“ segir Magnús Sævarsson.
 
Frá þessu er sagt á samfélagsmiðlum Samherja í dag.

Nýjast