Hertar sóttvarnaráðstafanir á tjaldsvæðum

Frá tjaldsvæðinu Hömrum. Mynd/akureyri.is
Frá tjaldsvæðinu Hömrum. Mynd/akureyri.is

Hertar samkomutakmarkanir vegna Covid-19 sem tóku gildi um helgina hafa mikil áhrif á starfsemi tjaldsvæða bæjarins og getu þeirra til að taka á móti gestum.

Gefnar hafa verið út leiðbeiningar fyrir tjaldsvæði í tengslum við sóttvarnareglurnar sem fela meðal annars í sér að hvert svæði má taka við 75% af hámarksfjölda og ef fjöldi fer yfir 200 manns skal skipta svæðinu í sóttvarnarými. Eitt salerni er lágmark fyrir hvert rými og skal enginn samgangur vera á milli þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar

Rekstraraðilar tjaldsvæðanna á Akureyri leggja sig fram við að fylgja þessum reglum í hvívetna og hefur svæðinu á Hömrum því verið skipt í nokkur sóttvarnarými.

Mikil ásókn hefur verið í útivistarsvæðið á Hömrum í sumar og hefur fjöldi gesta dvalið á tjaldsvæðinu að undanförnu auk þess sem heimamenn á öllum aldri hafa notið þeirrar afþreyingar sem svæðið hefur upp á að bjóða.

Breyttar aðstæður nú hafa hins vegar í för með sér aukið álag á starfsfólk sem vill í senn taka vel á móti gestum, tryggja öryggi og fylgja hertum reglum. Viðbúið er að færri gestir komist að en vilja á Hömrum á næstunni og er mikilvægt að fólk sýni því skilning.

Umsjónarmenn tjaldsvæðanna biðla einnig til íbúa bæjarins og gesta sem ekki dvelja á tjaldsvæðinu að velja frekar önnur svæði til að njóta úvistar en þau sem tilheyra Hömrum meðan þetta ástand varir. Vert er að geta þess að á Akureyri eru fjölmörg framúrskarandi útivistar- og leiksvæði. Má til dæmis nefna Kjarnaskóg, í næsta nágrenni Hamra, þar sem er nóg pláss og auðvelt að halda góðri fjarlægð.


Athugasemdir

Nýjast