Stjórn Hafnasamlags Norðurlands hefur samþykkt að bjóða út kaup á LVCS-lágspennukerfi fyrir Torfunefsbryggju á Evrópska efnahagssvæðinu á næstu dögum. Kerfið er síðasti liðurinn í undirbúningi þess að tengja minni skemmtiferðaskip við landrafmagn. Gangi áætlanir eftir verður hægt að tengja fyrsta skipið sumarið 2027.
Pétur Ólafsson hafnastjóri Hafnasamlags Norðurlands segir að um sé að ræða svonefnt stengstjórnunarkerfi sem senn verður boðið út og að um sé að ræða lokahnykk í uppbyggingu rafvæðingar við Torfunefsbryggju. Tveimur áföngum verkefnisins er þegar lokið.
Kostnaðarsamt en mikilvægt
Pétur segir verkefnið vissulega kostnaðarsamt en afar mikilvægt sé að geta boðið upp á þessa þjónustu. „Gangi afhending búnaðar, uppsetning og prófanir samkvæmt áætlun er stefnt að því að fyrstu skipin geti fengið rafmagn frá landi sumarið 2027,“ segir Pétur.
Torfunefsbryggja þjónar einkum smærri skemmtiferðaskipum, um 200 farþega skipum, en síðar er stefnt að tengingum fyrir stærri skip við Tangabryggju. Markmiðið er að bæta loftgæði með að draga úr þörf skipanna fyrir að keyra vélar þegar þau liggja við bryggju.