Jökill ÞH 299 Mynd GPG
Stjórnendur GPG Seafood á Húsavík, sem gerðu Jökul ÞH út, segja atburði gærkvöldsins snerta starfsfólk fyrirtækisins djúpt. Í yfirlýsingu sem birt er á Facebook-síðu fyrirtækisins er harmi lýst vegna atburðarins og samúðkveðjur sendar til skipverja, fjölskyldna þeirra og annarra aðstandenda. Jafnframt kemur fram að fyrirtækið muni gera allt sem í þess valdi stendur til að aðstoða þá sem eiga um sárt að binda.
Yfirlýsingin er svohljóðandi í heild sinni:
,,Það er erfitt að finna viðeigandi orð á stundu sem þessari. Þau virðast máttvana. Útgerð Jökuls er lítil og atburðir gærkvöldsins snerta okkur öll djúpt. Hugur okkar er hjá skipverjum, fjölskyldum og öðrum aðstandendum. Fyrirtækið mun gera allt sem í þess valdi stendur til að aðstoða þau sem eiga um sárt að binda og veita alla þá aðstoð sem unnt er.
Björgunaraðilar unnu þrekvirki í gærkvöldi við mjög krefjandi aðstæður.
Við færum öllum sem komu að málum okkar innilegustu þakkir.
Margar spurningar vakna við atburð sem þennan. Við vonum að því verði sýndur skilningur að erfitt getur verið að svara þeim öllum svo skömmu eftir að hann gerist. Umfram allt þurfum við nú að hlúa að okkar fólki og þeim sem syrgja ástvini