Verktakinn veitti greiðslufrest til morguns
Fulltrúar Eyþings Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum ætluðu að funda með þingmönnum Norðausturkjördæmis í dag, vegna stöðunnar sem upp er komin í almenningssamgöngum á svæðinu. Þeim fundi var frestað til morguns. Eyþing átti að greiða verktakanum sem sér um áætlunarferðrnar 4 milljónir króna í dag, en þeir peningar eru ekki til að sögn Geirs Kristins Aðalsteinssonar formanns Eyþings. Hann segir að verktakinn hafi veitt greiðslufrest til morguns.
Á morgun verður málið rætt við samgönguráðherra og vonar Geir Kristinn að línur skýrist á þeim fundi.
Karl eskil @vikudagur.is