"Þetta er þörf ámmining"
Það hefur verið talsverð uppbygging í bænum hvað varðar íþróttamannvirki á undangengnum árum sem hefur haft forgang og því miður getum við ekki gert allt í einu. Næstu skref eru hins vegar að huga að eldri mannvirkjunum, segir Tryggvi Gunnarsson formaður Íþróttaráðs Akureyrar. Eins og Vikudagur hefur greint frá, og fram kemur í ritgerð Jóhannesar G. Bjarnasonar íþróttafræðings frá HA, eru aðstæður í grunnskólum Akureyrar hvað íþróttakennslu varðar mjög mismunandi.
Akureyrarbær býr yfir bestu aðstæðum á landsvísu en jafnframt afar slökum aðstæðum. Þetta er þörf áminning sem þarna kemur fram og við tökum þetta til skoðunar, segir Tryggvi.
Nánar er rætt við Tryggva í nýjustu prentútgáfu Vikudags.