„Við erum bjartsýn, komandi vetur lítur vel út og sem dæmi var bókunarstaða í áætlunarflugi easyJet til og frá Akureyri um síðustu mánaðarmót betri en hún var á sama tíma fyrir ári,“ segir Hjalti Þórarinsson verkefnastjóri Flugklasans Air 66. Að mörgu er hugað um þessar mundir, m.a. viðræður við nokkur flugfélög um beint millilandaflug til Akureyrar þar sem spennandi áfangastaðir eru til umræðu. Þá hefur áframhaldandi fjármögnun Flugklasans verið í brennidepli undanfarið, sveitarfélög á Norðurlandi hafa flest ákveðið að taka þátt en beðið er eftir viðbrögðum frá ríkinu.
Samningar um fjármögnun Flugklasans renna út um næstu áramót. Hjá ráðuneyti ferðamála er unnið að endurskoðun fyrirkomulags og fjármögnunar á kynningarmálum og markaðssetningu Íslands hvað ferðaþjónustu varðar. Afrakstur þessarar vinnu ætti að liggja fyrir einhvern tímann síðla árs og þá kemur í ljós hvort ríkisstjórnin hyggur á breytingar á núverandi fyrirkomulagi, og þá í hverju þær gætu falist. Undanfarin ár hefur Flugklasinn fengið framlag frá ráðuneytinu og búið er að óska eftir samningi um framlag næstu þrjú árin.
Góð viðbrögð sveitarfélaga
Sveitarfélög á Norðurlandi hafa frá upphafi lagt verkefninu lið með árlegu framlagi og nýlega sendi Flugklasinn ósk til þeirra um áframhaldandi stuðning næstu þrjú árin. „Við erum afar þakklát fyrir góð viðbrögð sveitarfélaganna, en þegar hafa 12 af 15 svarað á jákvæðum nótum. Þetta skiptir sköpum fyrir okkur varðandi það að halda áfram okkar vinnu við beint millilandaflug til Akureyrar, en það skiptir þessi sveitarfélög líka miklu.“
Flugklasinn Air 66 hefur verið starfandi undanfarin 15 ár og segir Hjalti að verkefni af því tagi sé langtímaverkefni. Sem dæmi nefnir hann að Flugklasinn hafi verið í viðræðum við forsvarsmenn breska flugfélagsins easyJet í um áratug áður en flug á þess vegum til Akureyrar hófst haustið 2023. „Það líður oftast langur tími frá því fyrsta samtal á sér stað og þar til flug hefst, það er að mörgu að hyggja og flugfélög og ferðaskrifstofur horfa mjög til þess árangurs sem þegar hefur náðst í flugi inn á svæðið áður en ákvarðanir eru teknar,“ segir hann.
Alltaf í gangi viðræður um Kaupmannahöfn
Hann segir að um þessar mundir standi yfir viðræður við nokkra mismunandi aðila um að hefja millilandaflug beint inn á svæðið í náinni framtíð. Ekki er á þessu stigi tímabært að greina frá hver félögin eða áfangastaðirnir eru þar sem viðræður eru á viðkvæmu stigi. „Það eru alltaf í gangi viðræður um beint flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar og við höfum góðar vonir um að einn góðan veðurdag rætist sá draumur margra. Tenging milli þessara staða er sterk og við teljum að slíkt flug ætti að geta gengið,“ segir Hjalti spurður sérstaklega um þann fluglegg.

Hjalti Þórarinsson verkefnastjóri Flugklasans Air 66
Vaxandi áhugi fyrir Norðurlandi
Áhugi fyrir Norðurlandi er vaxandi að sögn Hjalta og því mikilvægt að fylgja verkefnum Flugklasans eftir. „Við höfum teiknað upp þá sviðsmynd að innan fárra ára muni fjögur félög halda uppi beinu millilandaflugi inn á svæðið og frá fjórum mismunandi löndum. Verði flug í boði allt árið og við bætist leiguflug á vegum ferðaskrifstofa, er ekki ólíklegt að farþegar sem koma beint inn á svæðið verði um 60 þúsund talsins yfir árið. Þessir farþegar gætu skilað um 10 milljarða króna tekjum á svæðið og þá horfum við einungis til daglegrar eyðslu. Ef þessi sviðsmynd raungerist mun landsframleiðsla aukast um 7,7 milljarða króna og skatttekjur ríkis og sveitarfélaga um 2, 8 milljarða. Það er því ljóst að um er að ræða gríðarlega hagsmuni, bæði fyrir Norðurlandi og Ísland í heild,“ segir Hjalti og slær þann varnagla að sumt rætist en annað ekki þegar dregnar eru upp sviðsmyndir.
Náttúran helsta ástæða ferðalagsins
Bókunarstaða hvað varðar beint flug easyJet til tveggja borga í Bretlandi, London og Manchester er betri nú en var á svipuðum tíma í fyrrahaust og gefur það tilefni til bjartsýni. Um helmingur farþega í þessu flugi eru Íslendingar sem bregða sér af bæ yfir veturinn og skjótast í stuttar borgarheimsóknir. „Bretar sem hingað koma eru gjarnan að taka stutt vetrarfrí, þrjár til fjórar nætur og eru flestir að heimsækja Norðurland í fyrsta sinn. Flestir hefðu að líkindum ekki lagt leið sína til okkar nema af því færi er á að nýta beint flug á þennan áfangastað. Margir virðast taka skyndiákvörðun um að koma því um fjórðungur bókar sína ferð með innan við mánuði fyrir brottför,“ segir Hjalti.
Það sem helst dregur breska ferðalanga norður, auk þess að komast þangað beint, er náttúran. Jarðhita- og náttúruböð, veitingastaðir og hvalaskoðun voru meðal vinsælustu upplifananna, en norðurljósin, landslagið, kyrrðin og hlýlegt viðmót heimamanna voru jafnframt nefnd sem hápunktar ferðarinnar.
Dregur úr árstíðasveiflum og hvetur til fjárfestinga
Hjalti nefnir að ferðalangar í beinu flugi leggi leið sína víða um fjórðunginn. Vinsælustu áfangastaðirnir utan Akureyrar eru Goðafoss og Mývatnssveit, um 37% fara samkvæmt könnun Rannsóknarstofu ferðamála til Húsavíkur, 24% brugðu sér til Siglufjarðar og 8% til Sauðárkróks. Áhrifin ná enn lengra og t.d. fær Hótel Laugarbakki reglulega næturgesti sem hafa komið með beinu flugi til Akureyrar. „Einn helsti ávinningurinn af beina fluginu er að það dregur verulega úr árstíðasveiflum í ferðaþjónustunni. Mörg fyrirtæki í greininni ná að halda sér á floti yfir allt árið sem ekki væri sjálfgefið nema vegna þess að hingað koma ferðamenn með beinu flugi fyrir vetrarmánuðina. Þetta hefur líka hvatt til mikilla fjárfestinga í ferðaþjónustu á svæðinu og því afar mikilvægt að halda áfram að efla flugið til að nýta þá fjárfestingu,“ segir hann.