Vakin er athygli íbúa á því að Húsavíkurkirkja verður opin fyrir alla í dag þar sem Séra Magnús Gunnarsson prestur og Séra Sólveig Halla Kristjánsdóttir prestur verða á staðnum ásamt fulltrúum frá Rauða Krossinum sem veita áfallahjálp.
Á þriðjudag var undirritaður endurnýjaður samstarfssamningur milli Akureyrarbæjar og Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) um rekstur og starfsemi ÍBA út árið 2029.
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps hefur samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Grýtubakkahrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis við Skælu. Með breytingunni verður heimilt heildarbyggingarmagn á svæðinu aukið úr 7.000 fermetrum í 8.100 fermetra til að skapa svigrúm fyrir fyrirhugaða stækkun Höfða Lodge.
Sveitarstjórn og starfsfólk Norðurþings vottar fjölskyldum og ástvinum þeirra þriggja skipverja Jökuls ÞH sem fórust sína innilegustu samúð. Hugur okkar allra er hjá áhöfninni, fjölskyldum hennar, ástvinum, starfsfólki og eigendum GPG Seafood ehf. í kjölfar hins hörmulega sjóslyss sem varð í gær.
Sigmundur Ernir Rúnarsson kynnir bókina BARNABÓK á Amtsbókasafninu í dag, 26. nóvember, klukkan 17. Þar dregur hann upp skemmtilega og forvitnilega mynd af lífinu á Akureyri á sjöunda áratug síðustu aldar, þegar nægjusemi, nýtni og útsjónarsemi voru meðal helstu dyggða fólks.
Stjórnendur GPG Seafood á Húsavík, sem gerðu Jökul ÞH út, segja atburði gærkvöldsins snerta starfsfólk fyrirtækisins djúpt. Í yfirlýsingu sem birt er á Facebook-síðu fyrirtækisins er harmi lýst vegna atburðarins og samúðkveðjur sendar til skipverja, fjölskyldna þeirra og annarra aðstandenda. Jafnframt kemur fram að fyrirtækið muni gera allt sem í þess valdi stendur til að aðstoða þá sem eiga um sárt að binda.
Framsýn stéttarfélag sendi eftirfarandi yfirlýsingu út á heimasíðu félagsins nú í morgun vegna hins hörmulega sjóslys sem var í gær þegar Jökull ÞH fórst.
Vakin er athygli íbúa á því að Húsavíkurkirkja verður opin fyrir alla í dag þar sem Séra Magnús Gunnarsson prestur og Séra Sólveig Halla Kristjánsdóttir prestur verða á staðnum ásamt fulltrúum frá Rauða Krossinum sem veita áfallahjálp.
Listasafnið á Akureyri býður gestum á sérstakt ilmferðalag með Fischersund og opnun sýningarinnar Bráðnun í Ketilhúsi í kvöld, fimmtudagskvöldið 26. nóvember. Húsið opnar klukkan 19:30 en dagskráin hefst klukkan 20:00.
Það er ekki á hverjum degi sem nemendur framhaldsskóla fá tækifæri til að stíga út fyrir hefðbundinn ramma listnámsins og láta hugmyndir sínar verða að lifandi listaverki fyrir framan áhorfendur. Það gerðu nemendur listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri þegar þeir tóku þátt í A! Gjörningahátíðinni í haust með eigin gjörningi í Mjólkurbúðinni á Akureyri.