Á morgun miðvikudaginn 25. nóvember verður farin ljósaganga á Akureyri í tilefni 16 daga átaks gegn ofbeldi.
Mæting er á Ráðhústorg klukkan 16.30 og þaðan er gengið að Amtsbókasafninu þar sem Agnes Blöndal aðstoðarsaksóknari flytur erindi og nemendur frá MA og HA taka þátt.
Að göngunni standa Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbburinn Þórunn hyrna og fulltrúar nemenda og stúdenta í MA og HA. Sunna Hlín Jóhannesdóttir, oddviti framsóknar., og lögregluþjónar leiða gönguna og á Amtsbókasafninu bíða heitir drykkir og fróðleg erindi.
Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991. Tímabil átaksins tengir á táknrænan hátt saman dagana 25. nóvember, sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum, og 10. desember, sem er alþjóðlegi mannréttindadagurinn.
Markmiðið er að knýja á um afnám alls ofbeldis og styðja við réttindi, réttlæti og aðgerðir gegn ofbeldi