Í fylgd með fullorðnum fékk frábærar viðtökur
Erum í skýjunum: -segir Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir
Erum í skýjunum: -segir Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir
mth@vikubladid.is
„Þessi ákvörðun markar nýtt upphafi fyrir kraftlyftingar á Akureyri, þetta er spennandi áskorun og ég lít bjartsýnn til framtíðar,“ segir Alex Cambray Orrason sem hefur tekið að sér formennsku í nýrri lyftingadeild sem stofnuð verður undir merkjum KA. Félagsfundur KA samþykkti einróma að stofna lyftingadeild, en að líkindum mun deildin ekki fá inni á KA svæðinu fyrr en að tveimur árum liðnum þegar uppbyggingu sem fyrirhuguð er á svæðinu verður lokið. Nýja félagið byrjar svo sannarlega með tvær hendur tómar, hefur sem stendur hvorki húsnæði til að æfa í né heldur æfingabúnað. „Stærstu verkefnin fram undan eru að leysa þau mál.“
Alex segir að nú verði unnið að því hörðum höndum að endurreisa kraft- og ólympískar lyftingar á Akureyri og þess ekki langt að bíða að hægt verið að keppa undir merkjum Akureyrar á ný. „Undanfarin tvö ár hafa verið mjög strembin, ekkert kraftlyftingafélag fyrir hendi hér í bænum og ég til að mynda fór að keppa fyrir Ármann í Reykjavík,“ segir hann.
Kraftlyftingafélag Akureyrar var stofnað árið 1975. Fyrrverandi formaður þess flutti, að sögn Alexs upp á sitt einsdæmi allan búnað félagsins út á Hjalteyri og kom sér fyrir í fasteign sem einkahlutafélag í hans eigu leigir. Hann segir að engar formlegar ákvarðanir um flutning KFA milli sveitafélaga hafi verið teknar á félags- eða stjórnarfundum eða með samþykkt félagsmanna. Þrátt fyrir mótmæli hafi orðið að þessum flutningi.
„Félagið og félagsmenn þess eiga búnaðinn, það kemur skýrt fram í ársreikningum félagsins fyrir flutninginn. Það er óumdeilt samkvæmt lögum félagsins og kemur einnig fram í lögum ÍBA að komi til þess að félaginu verði slitið eða það flytji starfsemi sína úr bæjarfélaginu eigi ÍBA búnaðinn og beri að koma honum í not hjá öðrum félögum innan bandalagsins,“ segir Alex. Hann bendir á að á svipuðum tíma og unnið var að flutningi KFA út á Hjalteyri hafi ýmislegt misjafnt komið upp varðandi starfsemi félagsins, sem félagsmönnum hafi verið ókunnugt um. „Það vöknuðu margar spurningar en fátt var um svör, það bárust bara skriflegar og munnlegar hótanir sem á endanum varð til þess að loka á allt samstarf.“
Akureyri er í stórkostlegu sóknarfæri, nú hafa framsæknir aðilar stofnað flugfélag á Akureyri sem hyggur á reglubundið millilandaflug um Akureyrarflugvöll en með því myndast svo sannarlega önnur gátt inn í landið.
Helgi Eysteinsson hefur gengið til liðs við Niceair og er ætlað að stýra uppbyggingu á sölu- og markaðsstarfi félagsins.
Helgi hefur komið víða við í íslenskri ferðaþjónustu. Hann var framkvæmdastjóri Iceland Travel og VITA, dótturfélaga Icelandair Group á árunum 2008-2013 og hefur á undangengnum árum starfað á Íslensku auglýsingastofunni þar sem hann vann að ráðgjöf, uppbyggingu vörumerkja og markaðsfærslu fyrir mörg af sterkustu vörumerkjunum í íslenskri ferðaþjónustu. Auk þess hefur Helgi verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjölmörgum ferðatengdum verkefnum.
“Ég er gríðarlega spenntur fyrir verkefninu og heillaðist strax af kraftinum og frumkvöðlaandanum sem ég fann hjá stofnendum félagsins. Undirbúningur starfseminnar er vandaður og hluthafahópurinn er breiður og traustur. Það verður virkilega gaman að hefjast handa við að kynna starfsemina og vörumerkið fyrir viðskiptavinum á markaðssvæði félagsins á norður- og austurlandi og ekki síður að fá tækifæri til að kynna umheiminn fyrir þessari aðgengilegu gátt að töfrandi perlum norðurlands og þjónustu þeirra fjölmörgu öflugu ferðaþjónustuaðila sem þar starfa.“ segir Helgi.
Í dag opna Húsamiðjan, Blómaval og Ískraft nýja verslun og þjónustumiðstöð á Akureyri við Freyjunes og mun starfsemi fyrirtækisins flytjast frá Lónsbakka og Hjalteyrargötu þar sem fyrirtækið hefur verið með starfsemi um árabil. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þannig gæti eitt af slagorðum ferðabæklinga framtíðarinnar, þar sem Akureyri er kynnt fyrir væntanlegum ferðamönnum, hljómað.
Deiliskipulag af nýju Móahverfi samþykkt
Samkvæmt bókun skipulagsráðs frá 24. febrúar síðastliðnum er nú búið að fela skipulagsfulltrúa að halda áfram vinnu við breytingu á gildandi aðalskipulagi til samræmis við fyrirhugaðar framkvæmdir SS Byggis við Tónatröð. Margar áleitnar spurningar hafa vaknað í tengslum við afgreiðsluferlið sem ég tel mikilvægt að fá svör við áður en haldið er af stað í þá vegferð að kollvarpa forsendum og markmiðum aðalskipulags til að koma til móts við óskir verktakans. Þeim spurningum er hér með beint til formanns skipulagsráðs, Þórhalls Jónssonar og vænti ég þess að fá við þeim efnisleg svör.
Eyjafjarðarbraut vestari færð niður að árbakka
iður í því markmiði Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, HSN að draga úr losun gróðurhúslofttegunda er að horfa til grænna skrefa við val á bílaleigubílum
Fyrr í dag fór fram íbúafundur á Húsavík þar sem fulltrúar frá Íslenskum verðbréfum hf. og Íslandsþara ehf. kynntu fyrir íbúum Norðurþings hugmyndir og möguleika í nýsköpun á svæðinu.
Það virðist sem að á síðustu árum hafi ríkt ákveðin hræðsla að ræða orkumál á Íslandi sem leitt hefur til ákveðnar stöðnunar hér á landi. Skort hefur hugrekki til þess að taka þessa umræðu af fullri alvöru og afleiðingarnar blasa við okkur. Staðan í orkumálum er alvarleg, ný útgefin grænbók – stöðuskýrsla áskorana í orkumálum staðfestir það. Áframhaldandi orkuskortur er fram undan og þá eru til staðar flutningstakmarkanir á milli landsvæða, það á tímum þegar græn orka hefur aldrei verið mikilvægari.
Á morgun, fimmtudaginn 17.mars kl. 21:00 verða haldnir tónleikar til heiðurs hljómsveitinni Vaya Con Dios. Guðrún Harpa Örvarsdóttir ætlar að feta í fótspor söngkonunnar Dani Klein og er hún ásamt hljómsveit að fara flytja lög með þessari frábæru hljómsveit Belga í fjórða sinn á Græna hattinum á Akureyri
Um síðustu helgi fór fram fyrsta listvinnustofa verkefnisins Allt til enda en þar er börnum á grunnskólaaldri gefinn kostur á að sækja þrjár ólíkar listvinnustofur í Listasafninu á Akureyri og vinna með skapandi listamönnum og hönnuðum
Um helgina var haldin vinnustofa í Hrísey um ýmsa möguleika sem felast í auknum komum skemmtiferðaskipa til eyjunnar. Til stendur að halda sambærilega málstofu í Grímsey innan tíðar en einnig hefur færst í aukana að skemmtiferðaskip leggi leið sína þangað.
Á fundi sem haldinn var mánudaginn 7. mars síðastliðinn samþykkti sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps stuðning til hjálparsamtaka vegna móttöku flóttafólks frá Úkraínu um leið og sveitarstjórn fordæmdi harðlega innrás í Úkraínu. Bókun sveitarstjórnar má lesa hér:
Listiskipið Borealis leggst að Oddeyrarbryggju í fyrramálið og má segja að koma skipsins marki upphaf ferðamennsku á sjó hér norðan heiða þetta árið. Skipið sem er tæp 62.000 tonn að stærð kemur að sögn Péturs Ólafssonar hafarstjóra með u.þ.b. 700 farþega.
Íþróttafélagið Völsungur og PCC BakkiSilicon hafa undirritað tímamóta samstarfssamning til næstu tveggja ára
Þrettán eru inniliggjandi á Sjúkrahúsinu á Akureyri með Covid-19. Átta á lyflækningadeild, þrír á skurðlækningadeild og tveir á gjörgæsludeild, hvorugur í öndunarvél.
Akureyrarbær er í samvinnu við Vegagerðina að undirbúa lagningu nýs göngu- og hjólastígs meðfram norðanverðum Leiruvegi, frá Drottningarbraut og austur að Leirubrú. Stefnt er að því að hafa stíginn tvískiptan, þannig að hjólandi og gangandi verða á sitt hvorum stígnum.
Scandinavian Cup er mótaröð á vegum Alþjóða Skíðasambandsins (FIS) sem haldið er á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum á hverju ári. Í ár hafa farið fram mót í Beitostölen í Noregi, Falun í Svíþjóð, Otepää í Eistlandi og mun síðasta mótið fara fram á Akureyri. Mótið er gríðarlega sterkt og hingað mæta skíðagöngumenn sem m.a. hafa verið að taka þátt í heimsbikarmótum í ár. Þetta er í fyrsta skipti sem Scandinavian Cup er haldið á Íslandi og má því sannarlega segja að þetta sé allra sterkasta skíðagöngumót sem haldið hefur verið hér á landi.
Tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista Framsóknar & félagshyggju í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 14. maí var borinn upp til atkvæða á fjölmennum félagsfundi hjá Framsóknarfélagi Þingeyinga í dag, laugardaginn 12. mars. Tillagan var samþykkt samhljóða
Jóhann Rúnar Sigurðsson, formaður Félags málmiðnaðarmanna Akureyri, FMA, segir að samstarf iðnfélaganna í landinu í komandi kjarasamningum sé algert lykilatriði fyrir félagsmenn. Þetta kom fram í ræðu hans á aðalfundi félagsins en fundurinn var jafnframt afmælis- og hátíðarfundur í tilefni af 80 ára afmæli FMA. Engir félagsfundir voru á starfsárinu vegna kórónuveirufaraldursins en alls voru haldnir tíu stjórnarfundir. Félagsmönnum fjölgaði um 10 á starfsárinu og eru nú 453, þar af 8 konur.
Jóhann Rúnar kom víða við í ræðu sinni. Hann gagnrýndi forseta ASÍ og framkvæmdastjóra sambandsins fyrir stefnu þeirra í jafnréttismálum. „Nú á dögum snúast málin fyrst og fremst um kyn meira en félagsmenn eða almennt jafnrétti. Forseti virðist heldur ekki hafa skilning á að meta menntun eða reynslu til launa, sem er að mínu mati verulegt áhyggjuefni,“ sagði hann.
„Eiga iðnfélögin heima innan ASÍ – hvaða leið er okkur farsælust? Reyndar er það svo að formaður veltir því fyrir sér hvaða stefnu iðnaðarsamfélagið eigi að taka. Á að stofna formlega Samband iðnfélaga í því samstarfi sem iðnfélögin hafa verið í, svipað því sem Samiðn stendur fyrir nú og getur leyst þá hluti? Hin leiðin er einfaldlega að sameinast um framboð iðnfélaganna til embættis forseta ASÍ.“
Jóhann telur að samstarf iðnfélaganna á landsvísu sé eitt af því mikilvægasta fyrir félagsmenn FMA gagnvart réttindum og launasamningum inn í framtíðina
Helga Kristjánsdóttir er vísindamaður mánaðarins