Framboðslisti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember n.k. var samþykktur á fundi Norðausturráðs Viðreisnar í hádeginu
Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari á Akureyri leiðir lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. Í öðru sæti er Heiða Ingimarsdóttir, verkefnastjóri upplýsinga- og kynningamála á Egilsstöðum. Þriðja sætið skipar Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, kennari og þjálfari á Akureyri og í fjórða sæti er Gabríel Ingimarsson, rekstrarstjóri Hríseyjarbúðarinnar og forseti Uppreisnar. Hjálmar Pálsson, sölustjóri hjá Hnýfli, reykhús/fiskvinnslu skipar fimmta stæði og Arna Garðarsdóttir, verkefnastjóri skipar það sjötta.
,,Ég er mjög þakklátur fyrir traustið sem mér er sýnt og þann stuðning sem ég hef fengið frá fólki hvaðan af úr kjördæminu. Þetta er gríðarlega öflugur listi og ég er spenntur fyrir því að heyja þessa kosningabaráttu. Sérstaklega fyrir þau sem eru að kaupa sér sitt fyrsta húsnæði, stofna fjölskyldu og jafnvel fyrirtæki. Fólkið sem vill skapa verðmæti fyrir sig og sitt nærsamfélag. Ég vil beita mér fyrir þennan hóp,” segir Ingvar Þóroddsson, oddviti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi.
Framboðslisti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi í heild sinni: