Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í fyrsta skiptið dagana 18.–22. júní 2025. Öll sveitarfélög á Norðurlandi eystra standa að hátíðinni og stefnt er að því að viðburðir fari fram sem víðast í öllum landshlutanum.
Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.
Einstaklingar, félög og fyrirtæki eru hvött til þess að taka þátt í þessari einstöku hátíð með því að flagga regnbogafánum og allra helst standa fyrir viðburði í tengslum við hátíðina. Heimasíða hátíðarinnar er www.hinseginhatid.is en þar eru allar helstu upplýsingar að finna og munu viðburðir hátíðarinnar birtast þar þegar nær dregur hátíðinni. Þau sem hafa áhuga á að leggja fram hugmynd eða halda viðburð mega endilega hafa samband við Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur verkefnastjóra hátíðarinnar á netfangið hinseginhatid@akureyri.is.