Í dag kl 16:15 verður á Ráðhústorgi á Akurreyri friðar og samstöðustund með íbúum á Gasa. Það eru frænkur tvær sem fyrir þessum viðburði standa en þær eiga afmæli í dag og vilja láta gott af sér leiða í tilefni dagsins.
DAGSKRÁ:
KRISTÍN S. BJARNADÓTTIR
-kynnir nýstofnaða Vonarbrú, - almannaheillafélag með starfsemi yfir landamæri.
Markmið Vonarbrúar er að styrkja þær rúmlega 60 fjölskyldur sem við frænkur og mörg fleiri höfum verið að styrkja óformlega.
- Ef vel safnast standa vonir til að hægt verði að veita fleiri fjölskyldum á Gasa staka styrki.
-Það er einnig markmið Vonarbrúar að veita sálrænan og félagslegan stuðning frá Íslandi til fólks á Gasa, rjúfa einangrun og efla vináttu. Hvernig getum við best hjálpað?
ODDNÝ BJÖRG RAFNSDÓTTIR
- gefandi reynsla af því að vera í persónulegu sambandi við fólk á Gasa
Okkar ástkæri SVAVAR KNÚTUR tekur lagið fyrir okkur og með okkur.
HAMZA ABUKAMLEH dansari og leikari sýnir og stýrir Dabke dansi, frjáls þátttaka.
Frjáls framlög og söluborð til styrktar Vonarbrú:
- Glænýr lakkrís frá Góu!
- Handverk, vörur frá Blúndum og blómum o.fl.
Kæru þið öll, sýnum samstöðu með Palestínu, hittumst í lok vinnuviku og fáum styrk og innblástur hvert frá öðru, til góðra verka.
Þetta segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.