Frá vinstri á myndinni eru Bjarni Þórhallsson, formaður Golfklúbbs Akureyrar, Sigrún Steinarsdóttir frá Matargjöfum og Íris Ósk Gísladóttir sölu- og markaðsstjóri Skógarbaðanna
Skógarböðin og Golfklúbbur Akureyrar afhentu í dag Matargjöfum Akureyrar og nágrennis styrk að upphæð 500.000 krónur, sem safnaðist í góðgerðarhöggi við Skógarböðin.
Markmið góðgerðarhöggsins er að styðja við mikilvægt samfélagsverkefni og varð Matargjafir Akureyrar og nágrennis fyrir valinu í ár vegna þess ómetanlega starfs sem samtökin vinna fyrir einstaklinga og fjölskyldur á Norðurlandi.
Viðburðurinn sýndi hversu miklu er hægt að áorka þegar fyrirtæki, félög og einstaklingar leggja krafta sína saman. Samstaðan og viljinn til að leggja góðu málefni lið gerði það að verkum að safnaðist þessi glæsilega upphæð sem nú rennur óskipt til starfsemi Matargjafa.
Samfélagsábyrgð er Skógarböðunum mikilvæg og fyrirtækið leggur áherslu á að styðja við verkefni sem hafa raunveruleg og jákvæð áhrif á nærumhverfið. Með samstarfi við Golfklúbb Akureyrar tókst að skapa vettvang þar sem íþróttir, samvera og samfélagsleg ábyrgð fóru hönd í hönd.
Það er auðvelt að gleyma því að öflugt samfélag byggist af stórum hluta á fólki sem er tilbúið að rétta öðrum hjálparhönd. Starf Matargjafa Akureyrar og nágrennis er einmitt lifandi dæmi um það. Á hverjum degi leggja sjálfboðaliðar og aðrir sem koma að verkefninu sitt af mörkum en það gera þau af alúð, metnaði og umhyggju til að styðja við þá sem þurfa á hjálp að halda.
Skógarböðin vilja færa Golfklúbbi Akureyrar innilegar þakkir fyrir farsælt samstarf við framkvæmd verkefnisins, sem og öllum þátttakendum sem lögðu sitt af mörkum til að gera þessa styrkveitingu mögulega.
Jafnframt vilja Skógarböðin þakka Matargjöfum Akureyrar og nágrennis fyrir það óeigingjarna og mikilvæga starf sem samtökin vinna á hverjum degi. Það er einlæg von okkar að styrkurinn nýtist vel og styðji áfram við það mikilvæga hlutverk sem þau gegna í samfélaginu.
Þegar við stöndum saman getum við raunverulega skipt máli og gert samfélagið okkar hlýrra og sterkara.
Frá þessu segir í tilkynningu á Fb vegg Skógarbaða
Málmiðnbraut VMA fékk á dögunum nýja standborvél til notkunar í vélasal skólans. Tækjabúnaður í málmiðngreinum eldist hratt og er endurnýjun hans dýr, en góðir bakhjarlar skólans hlupu undir bagga að þessu sinni.
Óli Þór Árnason veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir mjög djúpa lægð vera á leið til landsins. Gera spár ráð fyrir að loftþrýstingur í lægðinni verði kominn niður í 937 millibör þegar hún nálgast landið á miðvikudagsmorgun. Útlit er fyrir að lægðin gangi á land skammt austan Mýrdalsjökuls og haldi þaðan til norðausturs.
Það er í mörg horn að líta þegar stór sýning er sett á svið samhliða skólagöngu. Hjá leikfélaginu Píramus & Þispu hefur undirbúningur að uppsetningu Mean Girls þó líka orðið tilefni til nýrra kynna og vináttu. Hrefna Ósk Davíðsdóttir, sem fer með hlutverk Reginu George, segir hópinn hafa þést jafnt og þétt og nýja félaga þegar orðna mikilvægan hluta af starfinu.
Auk náms á íþrótta- og lýðheilsubraut VMA er heldur betur nóg að gera hjá Ingu Björgu Brynjúlfsdóttur í blakinu. Hún æfir og spilar á fullu sem kantspilari með meistaraflokki KA og er þar að auki í þremur yngri landsliðum Íslands í blaki, U-17, U-18 og U-20.
Í síðustu viku þurfti ég að skottast suður til Reykjavíkur í mörg mismunandi verkefni. Allt frá því að láta sérfræðing skoða mig, heimsækja vini og vandamenn og ekki síst að hitta börn mín og barnabörn sem búa á Suðurlandinu. Ég fór vel undirbúinn og skipulagði ferðina þannig að tíminn myndi nýtast sem best.
Tólf stúdentar á öðru ári í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri lögðu land undir fót á dögunum til að taka þátt í alþjóðlegu námskeiði í Lissabon. Námskeiðið var dagana 28. september til 2. október og ásamt íslensku stúdentunum voru á því hjúkrunarnemar frá Portúgal og Noregi. Með í för voru einnig Þórhalla Sigurðardóttir, Anna Karen Sigurjónsdóttir og Kolbrún Sigurlásdóttir, sem allar starfa við Hjúkrunarfræðideild, auk Valgeirs Árnasonar kerfisstjóra.
Tólf stúdentar á öðru ári í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri lögðu land undir fót á dögunum til að taka þátt í alþjóðlegu námskeiði í Lissabon. Námskeiðið var dagana 28. september til 2. október og ásamt íslensku stúdentunum voru á því hjúkrunarnemar frá Portúgal og Noregi. Með í för voru einnig Þórhalla Sigurðardóttir, Anna Karen Sigurjónsdóttir og Kolbrún Sigurlásdóttir, sem allar starfa við Hjúkrunarfræðideild, auk Valgeirs Árnasonar kerfisstjóra.