Sex félagar í Ferðafélagi Akureyrar sæmd gullmerki Ferðafélags Íslands á afmælisári FA

Frá vinstir Páll Guðmundsson (framkvæmdastjóri FÍ), Grétar Grímsson, Ólöf Tryggvadóttir, Haukur Ívar…
Frá vinstir Páll Guðmundsson (framkvæmdastjóri FÍ), Grétar Grímsson, Ólöf Tryggvadóttir, Haukur Ívarsson, Einar Hjartarson, Fjóla Kristín Helgadóttir, Hjalti Jóhannesson og Gunnar Már Gunnarsson Mynd FA

Síðastliðinn laugardag var hin árlega Sviðamessa Ferðafélags Akureyrar haldin í Ljósvetningabúð. 

Þar voru sex einstaklingar sæmd gullmerki Ferðafélags Íslands. Öll ötulir félagsmenn Ferðafélags Akureyrar og hafa verið til margra ára.
Gullmerki FÍ er veitt þeim einstaklingum sem hafa með einum eða öðrum hætti unnið einstakt starf á vettvangi Ferðafélagi Íslands, á kjörsviðum þess og eftir stefnu og gildum.

Til hamingju Einar Hjartarson, Fjóla Kristín Helgadóttir, Grétar Grímsson, Haukur Ívarsson, Hjalti Jóhannesson og Ólöf Tryggvadóttir

Frá þessu segir á samfélagsmiðlum FA

Nýjast