Gedda treyjan - Fallegt framtak Þórsara

Gestur Arason, ötull sjálfboðaliði í Þór og núverandi liðsstjóri meistaraflokksliðs karla greindist með bráða hvítblæði í byrjum maí og er í erfiðri meðferð á Landspítalanum sem mun taka sinn tíma, hve langan er erfitt um að segja.

Þórsarar kynntu í gær fallegt vel til fundið framtak til styrktar Gesti og fjölskyldu, framleidd hefur veriið sérstök treyja hönnuð af Jasoni Orra Geirssyni ungum Þórsara og treyjuna er hægt að kaupa í öllum stærðum frá small og þau okkar sem þurfa fleiri X fyrir framan L-ið þurfa ekki að sitja hjá, það eru stærðir fyrir alla.

Treyjan kostar aðeins kr. 15,000.- og rennur allur ágóði af sölu hennar til fjölskyldu. Gests.

Með þvi að feta slóðina hér fyrir neðan er hægt að ganga frá kaupum á ,,Treyju fyrir Gedda”

https://macron.is/vara/fyrirgedda/

Nýjast