Besta kaffihús Íslands!

Ármann Atli Eiríksson eigandi Kaffistofunnar í ,,aksjón
Ármann Atli Eiríksson eigandi Kaffistofunnar í ,,aksjón"

Kaffistofan hefur verið valin sigurvegari á Íslandi í European Coffee Trip Awards 2026! Það er okkur mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu, ekki síst þar sem hún byggir á atkvæðum kaffiaðdáenda.

Frá litlu kaffihúsi og kaffibrennslu á Akureyri höfum við lagt metnað okkar í að bjóða upp á framúrskarandi kaffi, góða þjónustu og notalega upplifun.  Við erum ótrúlega þakklát öllum sem hafa heimsótt okkur, stutt okkur og kosið okkur.
 
Takk fyrir! 🤎
 
 
Frá þessu segir á samfélagsmiðlasíðum Kaffistofunnar nú síðdegis. 

Nýjast