Svona framkoma verður ekki liðin

Samsett mynd ein.is
Samsett mynd ein.is

Tryggvi Jóhannsson formaður Einingar Iðju bregst í harðorðri yfirlýsingu á heimasíðu félagsins ókvæða við fréttum af fyrirhugaðri hækkun á gjaldskrá Norðurorku um næstu áramót.

Fram kom í frétt á RUV  á dögunum að meirihluti stjórnar Norðurorku ráðgeri að hækka gjaldskrá fyrirtækisins meira en yfirlýst stefna Akureyrarbæjar sem á tæp 100% í fyrirtækinu segir til um.

Tryggvi formaður er alls ekki sáttur og lætur hafa eftir sér á áðurnefndri heimasíðu Einingar Iðju: ,,Það er með miklum ólíkindum að stjórn Norðurorku ætli að hlaupast undan ábyrgð í því mikilvæga verkefni sem við erum í að ná stöðugleika í þjóðfélaginu. Félagsmenn Einingar-Iðju hafa lagt sitt af mörkum allt frá undirritun samninga 2024." 

Tryggvi gerir kröfu á stjórn Norðurorku um endurskoðu þessarar ákvörðunar og haldi hækkunum í  2,5%.  Jafnframt krefst Tryggvi þess að bæjarstjórn Akureyrar axli sína ábyrgð í málinu og beiti sér fyrir því að fyrirtæki sem er í stærstum hluta í eigu Akureyrarbæjar haldi gefin loforð frá því að framlenging samninga var undirrituð 8. október sl.

Nýjast