Á síðustu önn, vorönn 2026, fóru fimm nemendur VMA í 3-5 mánaða skiptinám til þriggja Evrópulanda, Belgíu, Tyrklands og Lettlands, á vegum AFS-skiptinemasamtakanna og í síðustu viku fór einn VMA-nemi til viðbótar í skiptinám á vegum AFS til Slóvakíu. Þessir nemendur fengu fjárhagsstuðning frá Erasmus+ styrkjakerfi ESB, sem greiðir um 85% námskostnaðar. Í VMA stunda eru núna þrír AFS-skiptinemar, frá Japan, Slóvakíu og Þýskalandi, sem verða hér í 3-10 mánuði.
Í síðustu viku var ný tegund af dælu sett ofan í borholu hitaveitunnar, HJ-20, á Hjalteyri, þegar hefðbundinni öxul dælu var skipt út fyrir ESP dælu frá SLB. Helsti munurinn er sá að bæði dælan og mótorinn sem knýr hana áfram fara ofan í holuna í stað þess að dælan sé niðri og mótorinn uppi, og öxull þar á milli. Þetta fyrirkomulag einfaldar viðhald og auk þess sendir ESP dælan frá sér ýmsar upplýsingar sem ekki fengust áður, til dæmis hita á vatni og mótor, titring, þrýsting á dælunni og vatnshæð í borholunni.
Farsældardagur Norðurlands eystra fór fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri föstudaginn 4. september. Þar komu saman fagfólk, fulltrúar stofnana og sveitarfélaga auk foreldra til að ræða farsæld barna, samþættingu þjónustu og leiðir til að efla samstarf þeirra fjölmörgu aðila sem koma að börnum og fjölskyldum á starfssvæði SSNE.
Það hafði lengi verið draumur Guðrúnar Huldar Gunnarsdóttur, eiganda listdansskólans Steps Dancecenter á Akureyri, að læra stepp. Haustið 2021 ákvað hún að láta verða af því og fékk Ívar Helgason, sem margir þekkja betur fyrir störf sín sem leikara og söngvara, til að kenna sér. Hún vonaðist til að fleiri hefðu áhuga á að slást í hópinn – og sú varð raunin.
Þingvallastræti, frá Gilinu og upp fyrir gatnamótin við Sundlaug Akureyrar, verður lokað fyrir umferð þriðjudaginn 8. september og miðvikudaginn 9. september vegna vegna fræsinga og malbikunar.
Unnið verður á svæðinu í dag, mánudaginn 7. september, en þá verður umferð hleypt um götuna.
Hjáleið verður um Hamarstíg.
Í vetur las ég sagnabálk Einars Kárasonar, Óvinafagnað. Hef áður lesið Óvinafagnað, en rétt eins og með Sölku Völku og Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness þá er ekki síður gaman að lesa þær aftur og fá meiri dýpt.
„Ég kem alltaf við af og til og vitja fernunnar,“ segir Guðlaugur Benedikt Aðalsteinsson hárskeri á Akureyri. Hann ólst upp á Húsavík. Í einum hjóltúr frá bænum og að Tröllakoti skildi hann eftir kókómjólkurfernu vel skorðaða undir steini. Síðan er liðin nær hálf öld og enn eru leifar af fernunni undir steininum.