Ástin dró Þóru Soffíu Gylfadóttur til Raufarhafnar og þar hefur hún fundið efnivið í bæði handverk og sögur. Með verkefninu Hannað við heimskautsbaug vill hún skapa muni sem tengjast staðnum og með heimildarmyndinni Arfi sem lifir áfram, varðveita minningar fólks frá síldarárunum.

Það sem öðrum þótti lítils virði gat verið fjársjóður í augum Þóru Soffíu Gylfadóttur. Sem barn heimsótti hún frænda sinn í verksmiðjurnar á Akureyri þar sem hann starfaði og fór heim með fullan poka af efnisafgöngum. Úr þeim mátti búa til eitthvað nýtt og hún gat dundað sér endalaust við það.
„Það sem öðrum þótti kannski ekki merkilegt var hreint gull í mínum höndum!“
Þessi sköpunargleði fylgir henni enn. Þóra Soffía er menntuð í grafískri hönnun og starfar sjálfstætt. Nú sækir hún meðal annars efnivið og innblástur í Raufarhöfn, náttúruna í kring og sögur fólksins sem þar hefur búið og starfað.
Þóra Soffía er fædd og uppalin á Árskógsströnd við Eyjafjörð. Hún er gift Einari Sigurðssyni, fjögurra barna móðir og fimm barna amma. Tengslin við Raufarhöfn eiga sér langa sögu.
„Eins og svo oft vill verða var það ástin sem réð för. Mannsefni dró mig til Raufarhafnar fyrir, ja, ansi mörgum árum síðan! Þar hef ég skotið rótum og eignast sterk tengsl við staðinn og fólkið.“
Í dag býr hún bæði á Akureyri og Raufarhöfn og nýtur þess að eiga heima á báðum stöðum. Flakkið á milli þeirra hentar henni ágætlega og verkefnin eru fjölbreytt. Þegar hún svaraði spurningum Vikublaðsins stóðu Menningardagar yfir á Raufarhöfn og hún ætlaði að hafa opið hús á vinnustofunni sinni. Samhliða því var hún að skreyta fyrir árshátíð á Akureyri.
„Dagarnir eru misrólegir, það er alveg óhætt að segja það!“
Þótt nóg sé að sýsla er það einmitt kyrrðin sem hún nefnir þegar talið berst að því hvað henni þyki best við Raufarhöfn. Nálægðin við náttúruna og samfélagsandinn skipta hana líka miklu.
„Hér er hægt að hægja aðeins á sér, þótt verkefnin og hugmyndirnar sjái oft til þess að maður sitji nú ekki auðum höndum. Það er einmitt þessi blanda af ró og skemmtilegu mannlífi sem gerir staðinn svo heillandi í mínum augum.“
Sköpun og handverk hafa verið hluti af lífi Þóru Soffíu frá því hún man eftir sér. Hún hafði sérstakt dálæti á smíðum í grunnskóla og á enn muni frá þeim tíma sem henni þykir vænt um. Áhuginn á að nýta efni og sjá möguleika í því sem til fellur hefur líka haldist.
Hugmyndin að verkefninu Hannað við heimskautsbaug kviknaði hins vegar í ferð til Rovaniemi í Finnlandi fyrir nokkrum árum. Þangað fór hún með hópi ferðaþjónustuaðila af Norðausturlandi. Athygli hennar vakti hvernig heimskautsbaugurinn var nýttur til að byggja upp ímynd og upplifun, meðal annars með handverki og hönnun.
„Ég fór að velta því fyrir mér hvers vegna við gætum ekki gert eitthvað sambærilegt á Raufarhöfn, en auðvitað á okkar eigin forsendum.“
Hún segir sérstöðu Raufarhafnar veita ótal tækifæri. Nálægðin við heimskautsbauginn, náttúran, birtan og myrkrið, sagan og menningin séu allt uppsprettur innblásturs.
„Mig langar að þróa handverk og vörur sem hafa raunverulega tengingu við staðinn og segja einhverja sögu. Ég hef sérstaklega gaman af því að vinna með ólíkan efnivið, endurnýta það sem til fellur og sjá nýja möguleika í hlutum sem aðrir gætu jafnvel litið fram hjá.“

Meðal þess sem Þóra Soffía vinnur nú að eru óróar sem sækja innblástur í umhverfi og sögu Raufarhafnar. Á bak við hvern þeirra er ákveðin saga eða tenging við staðinn. Hún nefnir Hólminn og Höfðann og náttúrulega innsiglinguna sem dæmi um það sem hægt sé að vinna með í formum, litum og frásögnum.
„Mig langar að fólk sem eignast hlut frá mér fái ekki bara handverk, heldur líka litla sögu með sér heim. Eitthvað sem tengir það við Raufarhöfn, náttúruna, fólkið og menningararfinn.“
Hannað við heimskautsbaug er enn í þróun og hugmyndirnar margar. Hún á erfitt með að velja eina vöru í uppáhaldi enda sé sköpunarferlið sjálft oft það skemmtilegasta, þegar hugmynd verði smám saman að áþreifanlegum hlut.
Vonin er jafnframt að verkefnið geti orðið vettvangur fyrir fleiri.
„Það væri svo gaman ef Hannað við heimskautsbaug gæti með tímanum orðið meira en bara mín eigin sköpun og skapað vettvang fyrir fleiri handverksmenn og hönnuði til að vinna með sérstöðu Raufarhafnar.“
Tengingin við sögu staðarins birtist einnig í heimildarmyndarverkefninu Arfi sem lifir áfram. Þar vill Þóra Soffía varðveita sögur og minningar frá síldarárunum. Hugmyndin hafði lengi blundað í henni en áhugi farþega skemmtiferðaskipa sem komu til Raufarhafnar varð sérstök kveikja.
Hún kemur sjálf úr sjávarplássi og á eigin minningar af síldarsöltun. Árin 1987 og 1988 saltaði hún síld á Seyðisfirði hjá Hreiðari Valtýssyni, frænda sínum.
„Ég fékk aðeins að upplifa rómantíkina í kringum síldina þegar ég saltaði síld á Seyðisfirði árin 1987 og 1988 hjá Hreiðari Valtýssyni, frænda mínum. Sú reynsla hefur eflaust átt sinn þátt í því að þessi saga hefur alltaf staðið mér nærri.“
Með myndinni vill hún gefa þeim sem upplifðu síldarárin tækifæri til að segja sína sögu og miðla henni til komandi kynslóða.
„Ekki bara söguna um síldina og atvinnulífið, heldur líka fólkið, stemninguna og mannlífið sem fylgdi þessum sérstaka tíma.“
Þóra Soffía segir samtöl við eldri íbúa hafa gefið sér mikið. Þeir ljómi þegar talið berist að síldarárunum og þótt vinnan hafi verið mikil, dagarnir langir og aðstæður erfiðar sé lífsgleðin áberandi í frásögnunum.

Ljósmyndir geta líka sagt sterkar sögur. Hún nefnir sérstaklega mynd frá brunanum í Búðinni, fyrsta verslunarhúsi staðarins. Það sem vekur athygli hennar er hvernig fólk á myndinni reynir að bjarga verðmætum og slökkva eldinn á meðan aðrir halda áfram störfum.
Þóra Soffía sér fyrir sér að vinna við síldarsögurnar geti með tímanum orðið að sýningum, fræðslu og viðburðum þar sem sagan sé gerð lifandi fyrir bæði heimamenn og gesti. Það sem heillar hana mest er að tengja fortíðina við nútíðina og framtíðina og nýta menningu og sérstöðu Raufarhafnar til nýrrar sköpunar.
„Ég held að Raufarhöfn eigi ótrúlega mikið inni og mig langar að leggja mitt af mörkum til að draga það fram. Það er svo margt sem hægt væri að gera, en maður verður víst að taka eitt skref í einu – þótt hugurinn sé oft kominn nokkur skref á undan!“
Aðspurð hvað hún vildi helst að fólk vissi um Raufarhöfn nefnir hún aðdráttarafl sem erfitt sé að koma í orð. Kyrrðin og töfrarnir verði sífellt dýrmætari í hröðum heimi, en það sé fólkið sem gefi staðnum líf og karakter.
„Hér ríkir sterkur samfélagsandi þar sem hefðir og venjur skipa sinn sess, en um leið er það einmitt fólkið, með alla sína sérvisku og sérstöðu, sem gefur staðnum sinn einstaka karakter," segir Þóra Soffía að lokum.