Þórhalla Sigurðardóttir hlaut hvatningarstyrk Vísindaráðs SAk

Þórhalla Sigurðardóttir   Myns hsn.is
Þórhalla Sigurðardóttir Myns hsn.is

Á Vísindadegi SAk afhenti Vísindaráð hvatningarstyrk ársins til Þórhöllu Sigurðardóttur fyrir framúrskarandi vinnu við doktorsverkefni hennar.

Hvatningarstyrkurinn er ætlaður starfsfólki SAk sem stundar nám og sinnir vísindastarfi samhliða starfi sínu. Við mat á umsóknum horfir Vísindaráð meðal annars til stöðu verkefnis, umfangs þess og vísindavirkni viðkomandi.

Þórhalla hlýtur styrkinn fyrir doktorsverkefnið Exploring Transformative Learning and Authenticity in Simulation-Based Learning for Nursing Students, sem fjallar um umbreytandi nám og áreiðanleika í hermunarmiðuðu námi hjúkrunarfræðinema.

Með styrknum vill Vísindaráð styðja við áframhaldandi þróun verkefnisins, meðal annars með þátttöku í alþjóðlegum ráðstefnum og auknu samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila.

Við sama tækifæri vakti Vísindaráð athygli á mikilvægu framlagi annarra starfsmanna til vísinda- og gæðastarfs við SAk. Þær Þóra Katrín Erlendsdóttir, Sóley Smáradóttir, Katrín Eva Reykjalín og Dóra Björk Jóhannsdóttir hlutu glaðning frá ráðinu sem viðurkenningu fyrir framlag sitt.

Vísindaráð óskar Þórhöllu innilega til hamingju með hvatningarstyrkinn og þakkar öllum þeim starfsmönnum sem leggja sitt af mörkum til öflugs vísinda- og gæðastarfs á SAk.

Frá þessu segir á samfélagsmiðlum SAk

Nýjast