Jólaglögg aftur á svið eftir ákall frá áhorfendum

Umskiptingar svara kalli og mæta með Jólaglögg aftur á svið. Myndir: Umskiptingar/Hilmar Friðjónsson…
Umskiptingar svara kalli og mæta með Jólaglögg aftur á svið. Myndir: Umskiptingar/Hilmar Friðjónsson.

Grínsýningin Jólaglögg frá norðlenska atvinnuleikhópnum Umskiptingum vakti mikla lukku síðustu jól og verður nú sýnd aftur í Hofi á Akureyri.

Frá því að Jólaglögg kvaddi sviðið í Samkomuhúsinu á Akureyri síðustu jól hafa aðstandendur sýningarinnar ítrekað verið spurðir hvort von sé á meira jólagríni. Áhorfendur hafa sent skilaboð, stöðvað leikara úti á götu og spurt vini og vandamenn þeirra hvort sýningin verði sett upp aftur. Nú er svarið komið: Jólaglögg verður aftur á fjölunum þann 27. nóvember, að þessu sinni í Hofi á Akureyri.

Sýningin var frumsýnd í desember 2025 og fékk fljótt frábærar viðtökur hjá áhorfendum. Orðspor hennar breiddist hratt út, bæði á samfélagsmiðlum og manna á meðal, og eftirspurn eftir miðum varð slík að langir biðlistar mynduðust fyrir síðustu tvær sýningarnar.

„Við vissum eiginlega ekkert út í hvað við vorum að fara þegar við ákváðum að setja upp Jólaglögg í fyrra. Við höfðum aldrei unnið með sketsaformið áður, vorum að fjármagna sýninguna alfarið sjálf og miðasalan fór heldur rólega af stað. Þannig að við vorum satt best að segja svolítið stressuð. En svo komu áhorfendur og viðtökurnar fóru fram úr okkar björtustu vonum! Hláturinn var nánast stanslaus, fólk fór að tala um sýninguna út um allt og áður en við vissum af voru komnir langir biðlistar á síðustu sýningarnar,“ segir Jenný Lára Arnórsdóttir, leikstjóri Jólaglöggs.

Jólabrjálæði, svartur húmor og sannar sögur

Jólaglögg er frumsamin sketsasýning fyrir fullorðna þar sem jólahátíðin er tekin til kostanna. Þar er gert grín að öllu því sem fylgir jólunum og hvernig við getum orðið örlítið sturluð í tilraunum okkar til að halda fullkomin jól.

Húmorinn spannar allt frá klassísku gríni í anda Ladda til svartrar ádeilu og brandara sem dansa á mörkum hins viðeigandi. Sum atriðin byggja meira að segja á sönnum sögum. Sýningin er að mestu sú sama og í fyrra, en samfélagslegar vísanir eru uppfærðar til að endurspegla samtímann. Og það er aldrei að vita nema einn og einn nýr skets laumist inn í sýninguna.

Þá kemur leikkonan María Pálsdóttir inn í hópinn í stað Díönu Sus.

Norðlenskt grín úr norðlenskum veruleika

Jólaglögg er frumsamin norðlensk atvinnuleiksýning, sköpuð frá grunni af sviðslistafólki sem starfar á Norðurlandi. Þótt flestir Íslendingar kannist við jólageðveikina sem sýningin fjallar um, er grínið líka litað af mannlífinu fyrir norðan. Þar má finna persónur og aðstæður sem spretta úr hversdagslífinu á landsbyggðinni, án þess að gera sveitalífið sjálft að brandaranum.

„Það eru ákveðnar persónur og aðstæður sem verða til í okkar nærumhverfi og gefa gríninu sérstakan blæ. Við erum að segja sögur af fólki sem býr hér og lendir í alls konar aðstæðum, rétt eins og fólk annars staðar. En stundum er hversdagsleikinn aðeins öðruvísi og það gefur gríninu eitthvað extra,“ segir Jenný Lára.

Aðstandendur sýningarinnar vonast til að Jólaglögg geti með tímanum orðið að árlegri hefð á Akureyri. Það er þó ekki sjálfgefið að hægt sé að halda slíku verkefni úti, enda fylgir því töluverð fjárhagsleg áhætta að setja upp atvinnuleiksýningu án fjárhagslegs stuðnings.

En ef marka má miðasöluna í ár gæti Jólaglögg vel verið á leiðinni að festa sig í sessi sem jólahefð á Akureyri. Það er rétt komin byrjun október og nú þegar er nær uppselt á eina sýninguna og tvær aðrar eru orðnar hálffullar. Það virðist því sem Norðlendingar ætli ekki að láta jólaglöggið fram hjá sér fara í ár!

Sýningar og miðasala

Jólaglögg verður sýnt í Hömrum í Hofi á Akureyri dagana 27. og 28. nóvember og 4. desember 2026. Tvær sýningar verða á hverjum degi, klukkan 18:30 og 20:30.

Miðaverð er 7.900 krónur og miðasala er hafin á Tix.is.

Sýningin er ætluð fullorðnum.

Fylgjast má með Jólaglöggi og öðru starfi Umskiptinga á Facebook og Instagram.

Nýjast