Að greiða hár barns getur verið meira en verkefni sem þarf að ljúka áður en haldið er út í daginn. Stundin getur líka gefið færi á spjalli, samveru og tengslamyndun. Á námskeiðinu Tögl og tíðir hjá Þekkingarneti Þingeyinga fá feður tækifæri til að æfa hárgreiðslu og fræðast um blæðingar. Markmiðið er að efla bæði færni þeirra og öryggi í föðurhlutverkinu.

Þorbjörg Arna Unnsteinsdóttir, verkefnastjóri á símenntunarsviði Þekkingarnetsins, segir hárgreiðslunámskeið fyrir feður hafa verið á döfinni þegar hún hóf þar störf í lok sumars. Hún hafði þá séð dæmi erlendis frá þar sem hárgreiðslukennsla og tíðafræðsla voru sameinaðar og langaði að láta reyna á hugmyndina hér.
„Vissulega hefur aðeins verið kallað eftir hárgreiðslunámskeiði fyrir feður en enginn bað um tíðafræðsluna, svo ég viti. Ég held hins vegar að með því að fræða feður verði þeir öruggari í þeim erfiðu aðstæðum sem geta skapast á heimilum þegar unglingar ganga í gegnum kynþroskaskeiðið,“ segir Þorbjörg spurð að því hvort kallað hafi verið eftir slíku námskeiði.
Díana Jónsdóttir skólahjúkrunarfræðingur mun sjá um tíðafræðsluna en starfsfólk Hárforms annast hárgreiðslukennsluna.
Þorbjörg segir sambærileg námskeið erlendis hafa borið heiti á borð við „Periods and Ponytails“ og „Pints and Ponytails“. Hana hafi hins vegar vantað gott íslenskt nafn, helst með stuðlum.
Lausnin kom þegar hún sagði Hildi Halldórsdóttur, forstöðumanni frá hugmyndinni.
„Hildur var ekki lengi að hugsa þetta og slengdi fram hugmyndinni „Tögl og tíðir“ og síðan þá hefur námskeiðið heitið það, bæði í höfðinu á mér á meðan það var í undirbúningi og nú opinberlega.“
Þorbjörg segir enn talað vel um námskeiðið Pabbar og prinsessur, sem haldið var fyrir mörgum árum, og vilja hafa verið til þess að sambærilegt námskeið yrði í boði á ný. Feður taki fullan þátt í uppeldi barna sinna en hafi ekki endilega fengið kennslu í þeim viðfangsefnum sem nú verða tekin fyrir.
Þegar Þorbjörg leitaði að myndefni fyrir námskeiðið rak hún sig á nokkuð sem vakti hana til umhugsunar. Henni fannst mun auðveldara að finna myndir af feðrum með unglingsdrengjum og mæðrum með unglingsstúlkum en af foreldrum og unglingum af ólíku kyni, miðað við hefðbundna kyntjáningu á myndunum. Það hafi að hennar mati endurspeglað ákveðnar hugmyndir samfélagsins um samskipti foreldra og barna.
„Ég vil stuðla að því að feður geti rætt á opinskáan og upplýstan hátt um blæðingar þannig að dætur geti leitað jafnt til feðra sinna og mæðra þegar kemur að þessu málefni sem hefur svo lengi verið feimnismál hjá mörgum.“
Hárgreiðslufærnin skipti ekki síður máli. Þorbjörg vill að feður öðlist sjálfsöryggi og æfingu í að setja tögl, tígó og fléttur í hár.
„Hér er tækifæri fyrir pabba til að taka ábyrgð og fræðast.“
Þorbjörg hvetur foreldra til að byrja snemma að tala oft og mikið við börnin sín. Hárgreiðslustund geti til dæmis nýst til að ræða líðan, vináttu, mörk eða það að læra af mistökum. Stundum nægi einfaldlega að spjalla um daginn og veginn.
Hún vísar til áherslu Jákvæðs aga, agastefnu skóla í Norðurþingi, á tengingu sem undirstöðu leiðsagnar.
„Með ljúfum hárgreiðslustundum og spjalli ertu að styrkja tenginguna við barnið. Segi ég sem á ekki hársár börn allavegana.“
Þegar börn alist upp við að pabbi sinni þeim með margvíslegum hætti og að þau megi spyrja hann að öllu, telur hún líklegra að þau leiti líka til hans með mistök, vandræðaleg mál, óskir og þrár. Þekking á blæðingum geti auðveldað þau samtöl enn frekar.
„Uppeldi er langhlaup, ekki sprettir hér og þar.“

Námskeiðið hefst á hárgreiðsluhlutanum, þar sem þátttakendur æfa sig á gínum undir leiðsögn starfsfólks Hárforms. Þorbjörg segir algjöra byrjendur geta farið heim með greiðslu í fingrunum, þótt flækjustigið ráðist meðal annars af því hversu fljótir þeir séu að tileinka sér handtökin.
Vonin sé jafnframt að verklegi hlutinn hjálpi þátttakendum að slaka á áður en kemur að tíðafræðslunni.
„Við hendum okkur ekki lóðbeint í tíðahringinn og dömubindi. Við byrjum á hárgreiðsluhlutanum sem virkar vonandi sem ísbrjótur um leið og þeir fá praktíska þekkingu í hendurnar.“
Þorbjörg vonast til að feðurnir fari heim með nýja þekkingu og aukið sjálfstraust. Þeir eigi ekki að þurfa að kvíða því að ráða ekki við ákveðin verkefni í umönnun barnanna eða vera óöruggir um hvernig bregðast skuli við fyrstu blæðingum.
„Spáið í hvað börn þátttakenda eru heppin að eiga pabba sem sækja svona námskeið gagngert til að geta sinnt þeim betur,“ segir Þorbjörg að lokum.
Námskeiðið verður haldið á Stéttinni miðvikudagskvöldið 28. október klukkan sjö til sirka 10. Það kostar 9.500 krónur og skráning fer fram í gegnum hac.is.