Vídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival 2026 hefst á föstudaginn

Vídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival 2026 hefst á föstudaginn í Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri. Boreal hefur verið haldin á mörkum hausts og vetrar frá árinu 2020, fyrst í Mjólkurbúðinni en nú leggur hátíðin undir sig Listagilið rúmar þrjár vikur í október og nóvember. Viðburðir Boreal að þessu sinni fara fram í Listasafninu á Akureyri, Mjólkurbúðinni, Deiglunni og Kaktus.

 

Markmið Boreal er að upphefja danslistir og margmiðlunarlist á Norðurlandi eystra með sérstakri áherslu á gæði og alþjóðlega samvinnu. Hátíðin hefur vakið athygli fyrir nýstárlegar sýningar á vídeódansverkum úr víðri veröld í bland við eindæma verk eftir innlent listafólk. Boreal er eina hátíðin sinnar tegundar sem haldin er árlega hérlendis og árið 2021 hlaut hún hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar sem veitt eru framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni.

 

Í ár verða sýnd 16 vídeódansvek frá 13 löndum sem eru þeim eiginleika gædd að geta á svipstundu fært áhorfendur inn í nýjan menningarheim. Sýningin í Listasafninu er opin frá 23. október til 15. nóvember. Í Mjólkurbúðinni verður til sýnis samansafn verka frá Íslenska dansflokknum frá 28. október til 10. nóvember. Í Deiglunni verða tveir sýningardagar, þann 31. október verða sýnd fimm valin vídeódansverk og 7. nóvember verður sérstök sýning á verkinu Heima III eftir Önnu Richardsdóttur og Örnu Valsdóttur.

 

Það er samtímadansarinn og danshöfundurinn Yuliana Palacios sem er stofnandi og listrænn stjórnandi Boreal. Hún flutti frá Mexíkó til Íslands 2016 og hefur síðan unnið sjálfstætt að eigin verkum, oft í samvinnu við annað listafólk bæði hér- og erlendis. Síðustu ár hefur Yuliana fengist við vídeódans í auknum mæli og er Boreal ein birtingarmynd þess.

Setningarathöfn Boreal er klukkan 20:00 í Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri, föstudaginn 23. október. Athöfnin hefst með ávörpum og er fylgt eftir með spunadansverki eftir þýska samtímadansarann Jonathan Reimann.

 

Enginn aðgangseyrir er á sýningar Boreal.

Fylgjast má með Boreal á samfélagsmiðlum:

https://www.instagram.com/boreal_akureyri/

https://www.facebook.com/borealakureyri/

 

Samstarfs- og styrktaraðilar Boreal Screendance Festival 2026 eru: Akureyrarbær, Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra, Norðurorka, Prentmet/Oddi, Íslenski dansflokkurinn, Gilfélagið, Myndlistarfélagið & Listasafnið á Akureyri.

Nýjast