Umtalsverð aukning í komum og innlögnum ferðamanna

Fleiri leituð á bráðadeild Sjúkrahússins á Akureyri í fyrra miðað við árið á undan og þá hefur þjónu…
Fleiri leituð á bráðadeild Sjúkrahússins á Akureyri í fyrra miðað við árið á undan og þá hefur þjónusta vegna krabbameinslyfjagjafar aukist og er stöðugt vaxandi þáttur í starfseminni. Mynd Vikublaðið

Mikil aukning hefur verið í komum ósjúkratryggðra, þ.e. ferðamanna á Sjúkrahúsið á Akureyri, en alls leituðu 665 einstaklingar til SAk árið 2022 á móti 400 árið þar á undan. Alls voru 119 einstaklingar úr þessum hópi lagðir inn á sjúkrahúsið sem er umtalsverð fjölgun frá árinu þar á undan, 2021 þegar þær voru 52 í allt.

Fram kemur í starfsemistölum Sjúkrahússins á Akureyri fyrir árið 2022 að fjöldi dvalardaga yfir árið vara 28.244 og var meðalfjöldi legudaga 5,3. Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru tæplega 77% af heildarinnlögnum. Að meðaltali liggja 4,9 sjúklingar inni á hverjum tíma sem eru búnir í meðferð og bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili. Rúmanýting á lyflækninga- og skurðlækningadeild er rúmlega 89% yfir allt árið.

Tæplega 10.200 einstaklingar fengu þjónustu á göngudeild, þar af 2036 vegna krabbameinslyfjagjafar en sú þjónusta er stöðugt vaxandi að því er fram kemur í starfsemistölum sjúkrahússins.

Fleiri komur á bráðadeild

Komur á dagdeildir voru rúmlega 6.200. Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku hafa leitað tæplega 16.600 einstaklingar sem er 3,6% aukning frá árinu áður . Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er um 43 mínútur sem er rétt utan þeirra viðmiða sem sett eru.

Fjöldi skurðaðgerða hefur fækkað á milli ára og er helsta skýringin þar álag vegna Covid-19 en draga þurfti úr þjónustu vegna álags og manneklu. Gerðar hafa verið 375 gerviliðaaðgerðir á árinu. Fjöldi fæðinga var aðeins minni en í fyrra en á árinu fæddust 427 börn sem er tæplega 11% fækkun milli ára. Fjöldi myndgreiningarannsókna,án brjóstamynda)var tæplega 29.000 og gerir það að meðaltali um 79,4 rannsóknir á dag.


Athugasemdir

Nýjast